FRÉTTIR16.03.2025, 18:12
Hinrik Harðarson er genginn til liðs við norska liðið Odd frá ÍA. Odd féll úr efstu deild á síðustu leiktíð.
Hinrik er framherji sem fæddur er árið 2004 og er í U21 landsliðshópnum fyrir komandi vináttuleiki. Hinrik er sóknarmaður sem átti gott tímabil í fyrra en það var hans fyrsta tímabil í efstu deild á Íslandi.
Hann var keyptur til ÍA frá Þrótti eftir tímabilið 2023. Hinrik skoraði sjö mörk og lagði upp fimm í 26 leikjum í Bestu deildinni í fyrra.
FRÉTTIR16.03.2025, 06:00
Ægir hefur nælt í argentískan varnarmann fyrir átökin í 2. deild næsta sumar.
Sá heitir Ivan Moran en hann hóf ferlinn hjá einu stærsta félagi í Argentínu, Boca Juniors.
FRÉTTIR15.03.2025, 22:47
Vestri hefur nælt í varnarsinnaðan miðjumann frá Suður Afríku fyrir átökin í Bestu deildinni í sumar.
Sá heitir Thibang Sindile Theophilus Phete, betur þekktur sem Cafu Phete.
FRÉTTIR15.03.2025, 07:00
Fram hefur nælt sér í bandarískan bakvörð fyrir átökin í Bestu deildinni í sumar.
Hún heitir Kam Pickett og kemur úr Clemson skólanum í bandaríska háskólaboltanum.
FRÉTTIR14.03.2025, 15:58
Nýja átta sekúndna reglan var samþykkt af stjórn KSÍ fyrr í þessum mánuði og verður innleidd í íslenska fótboltann frá og með 1. umferð Mjólkurbikarsins sem hefst 28. mars.
Þetta kemur fram á heimasíðu KSÍ og hafði Þóroddur Hjaltalín, sem starfar við dómaramál hjá KSÍ, staðfest tíðindin í samtali við Fótbolta.net fyrr í dag.
Reglan er þannig að ef markmaður heldur á boltanum í átta sekúndur þá skal andstæðingurinn fá hornspyrnu. Gamla sex sekúndna reglan, þar sem dæmi átti óbeina aukaspyrnu ef markmaður hélt á boltanum í sex sekúndur, er ekki lengur til.
FRÉTTIR14.03.2025, 12:10
Grótta tilkynnti í dag um komu tveggja leikmanna sem munu spila með liðinu í 2. deild í sumar. Dagur Bjarkason er kominn frá grönnunum í KR og Halldór Hilmir Thorsteinson er kominn frá Fram.
<i>„Dagur, sem verður 19 ára gamall á árinu, er fjölhæfur leikmaður sem getur leikið alls staðar í varnarlínunni sem og á miðju. Þrátt fyrir ungan aldur á hann að baki 30 leiki með KV ásamt einum bikarleik og þremur Lengjubikarleikjum með KR. Dagur hefur komið af krafti inn í Gróttuliðið síðustu vikur og byrjað alla þrjá leiki liðsins í Lengjubikarnum,"</I> segir í tilkynningu Gróttu.
FRÉTTIR13.03.2025, 18:22
Markvörðurinn Sindri Kristinn Ólafsson er mættur aftur heim í Keflavík frá FH.
FRÉTTIR13.03.2025, 13:00
George Nunn, sem lék með HK í Bestu deildinni á síðasta tímabil, er genginn í raðir Cobh Ramblers í Írlandi.
Nunn er Íri sem var á sínum tíma á mála hjá Chelsea og Derby. Hann á að baki tvo leiki fyrir U19 landslið Írlands.
Nunn er 23 ára sóknarmaður sem skoraði eitt mark og lagði upp eitt í 25 leikjum í Bestu deildinni og tvö mörk í bikarnum.
FRÉTTIR13.03.2025, 12:53
<I>Bild</i> greinir frá því að Joshua Kimmich hafi náð samkomulagi við Bayern München um nýjan samning til 2029.
Í morgun var Kimmich í höfuðstöðvum Bayern ásamt fjölskyldu sinni og ráðgjöfum.
FRÉTTIR12.03.2025, 13:24
Orri Steinn Óskarsosn er nýr fyrirliði íslenska landsliðsins en frá þessu greindi Arnar Gunnlaugsson, þjálfari landsliðsins, á fréttamannafundi í dag. Orri tekur við hlutverkinu af Aroni EInari Gunnarssyni sem hafði verið í því hlutverki síðan 2012.
Orri er framherji sem fæddur er árið 2004 og lék sína fyrstu landsleiki árið 2023. Hann er í dag leikmaður Real Sociedad á Spáni og á að baki 14 landsleiki.
FRÉTTIR12.03.2025, 07:00
Snorri Þór Stefánsson er genginn til liðs við Fjölni.
Snorri er markvörður og fagnar 20 ára afmæli sínu síðar í mánuðinum. Hann er uppalinn hjá Stjörnunni en lék einnig með Þór í 2. flokki.
FRÉTTIR12.03.2025, 06:00
Georg Ethan Guðjohnsen Mitchell er genginn til liðs við Hamar sem leikur í 4. deild næsta sumar.
FRÉTTIR11.03.2025, 17:30
Sameiginlegt lið Grindavíkur og Njarðvíkur, Grindavík/Njarðvík, hefur heldur betur fengið liðsstyrk fyrir komandi átök í Lengjudeild kvenna því bandaríski sóknarmaðurinn Brookelynn Entz er búin að skrifa undir samning sem gildir út komandi tímabil.
Brookelynn er á leið í sitt fjórða tímabil á Íslandi en hún kom fyrst til landsins árið 2022 og lék þá með Val. Hún hefur svo síðustu tvö ár spilað með HK í Lengjudeildinni, skoraði tíu mörk 2023 og 13 mörk 2024.
Hún er sóknarsinnaður miðjumaður, fædd árið 1998, og getur spilað allar sóknarstöðurnar.
FRÉTTIR11.03.2025, 14:30
Markmaðurinn Íris Dögg Gunnarsdóttir hefur lagt hanskana á hilluna en þetta staðfestir hún við Fótbolta.net í dag.
Íris Dögg er fædd árið 1989 og lék á sínum ferli 307 meistaraflokksleiki. Hún er uppalin hjá Fylki og lék sína fyrstu meistaraflokksleiki árið 2004. Hún lék einnig með KR, Fylki, FH, Haukum, Gróttu, Aftureldingu, Breiðabliki, Þrótti og Val á sínum ferli. Þess má geta að Íris er með fjögur mörk skoruð á ferlinum, öll úr vítaspyrnum.
FRÉTTIR11.03.2025, 08:00
Grótta hefur nælt í nælt í bandarískan leikmann en sú heitir Ryanne Molenaar en hún mun taka slaginn með liðinu í Lengjudeildinni næsta sumar.
Molenaar hefur leikið í Bandaríkjunum og Austurríki á sínum ferli.
FRÉTTIR10.03.2025, 21:47
Valur hefur tilkynnt um komu Norðmannsins Marius Lundemo til félagsins. Hann gerir tveggja ára samning við Val.
FRÉTTIR10.03.2025, 07:00
Kría hefur styrkt sig verulega fyrir átökin í 4. deild í sumar. Þeir Pétur Theodór Árnason og Arnar Þór Helgason, Addi Bomba, eru komnir til liðsins frá Gróttu.
FRÉTTIR10.03.2025, 06:00
Jose Sanchez hefur komist að samkomulagi við um að rifta samningnum hans vegna veikinda í fjölskyldunni.
Jose er spænskur miðvörður en hann kom sterkur inn í liðið síðasta sumar. Hann lék 27 leiki og skoraði tvö mörk en liðið vann 2. deild og spilar því í Lengjudeildinni næsta sumar.
FRÉTTIR08.03.2025, 16:22
FH-ingar kynntu tvo nýja leikmenn hjá kvennaliðinu í dag en þær Deja Jaylyn Sandoval og Maya Lauren Hansen eru komnar og munu spila með liðinu á komandi leiktíð.
FRÉTTIR08.03.2025, 07:00
Þær Ásta Hind Ómarsdóttir og Kamilla Gísladóttir hafa skrifað undir samning við ÍR.
Ásta er fædd árið 2021. Hún er uppalin í HK en hefur einnig leikið með Fram. Hún kemur til ÍR frá Smára en hún þekkir til í Breiðholtinu þar sem hún lék með ÍR sumarið 2023.