Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25104 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR21.03.2025, 14:00

Ólafur Darri í Reyni (Staðfest)

Ólafur Darri Sigurjónsson er genginn í raðir Reynis og mun leika með Sandgerðingum út tímabilið. Óli er 19 ára sóknarmaður og á að baki 52 leiki í meistaraflokki og í þeim hefur hann skorað ellefu mörk. Hann kemur til Reynis frá uppdeldisfélaginu Haukum en Óli lék síðast með Loyola háskólanum í Bandaríkjunum í vetur.

FRÉTTIR21.03.2025, 13:30

Brighton fær suður-kóreskan unglingalandsliðsmann (Staðfest)

Brighton hefur tilkynnt að Yoon Doyoung sé orðinn leikmaður félagsins. Hann kemur frá Daejeon Hana Citizen í heimalandinu, Suður-Kóreu. Kaupverðið er óuppgefið. Doyoung er 18 ára U20 landsliðsmaður frá Suður-Kóreu sem kemur til Brighton í lok tímabils. Hann skrifar undir fimm ára samning.

FRÉTTIR21.03.2025, 11:00

HK fær unglingalandsliðskonu frá FH (Staðfest)

Rakel Eva Bjarnadóttir er gengin til liðs við Lengjudeildarlið HK að láni frá Bestu deildar liði FH. Rakel er 17 ára fjölhæfur leikmaður. Hún er uppalin hjá FH og á tæplega 50 meistaraflokksleiki, flesta með ÍH, og hefur í þeim skorað ellefu mörk. Hún á þá að baki sex leiki fyrir yngri landsliðin og fjögur mörk.

FRÉTTIR21.03.2025, 10:30

Marciano Aziz í Gróttu (Staðfest)

Marciano Aziz er genginn í raðir Gróttu en hann lék síðast með HK fyrri hluta síðasta tímabils. Hann kom fyrst til Íslands árið 2022 og lék þá frábærlega með Aftureldingu í Lengjudeildinni. Hann fann sig ekki með HK í Bestu deildinni og núna er hann kominn í 2. deild. Marciano er 23 ára sóknarsinnaður miðjumaður frá Belgíu. Hann er uppalinn hjá Eupen í heimalandinu og var á sínum tíma U18 landsliðsmaður Belga.

FRÉTTIR21.03.2025, 10:15

Andi Hoti keyptur í Val (Staðfest) - „Tækifæri sem ég hef verið að bíða eftir"

Andi Hoti er í dag kynntur sem nýr leikmaður Vals en félagið kaupir hann af uppeldisfélaginu Leikni. Andi gerir fimm ára samning við Val. <i>„Valur kaupir Andi frá Leikni og er kaupverðið trúnaðarmál,"</I> segir í tilkynningu Vals. Andi átti innan við ár eftir af samningi sínum við Leikni. Hann er miðvörður sem fæddur er árið 2003 og mætti á sína fyrstu æfingu með Val í morgun. Hann lék á láni með Þrótti og Aftureldingu tímabilin 2021 og 2022. Hann á bæði landsleiki með U-19 og U-21 ára landsliðum Íslands.

FRÉTTIR21.03.2025, 09:55

Benjamin Stokke í norsku C-deildina (Staðfest)

Benjamin Stokke, sem lék með Breiðabliki á síðasta tímabili, er búinn að semja við uppeldisfélagið sitt: Eik Tönsberg í Noregi. Hann yfirgaf félagið árið 2011 en er nú mættur aftur. Stokke er 34 ára norskur framherji sem kom í Breiðablik frá Kristiansund fyrir síðasta tímabil eftir að hafa verið markakóngur norsku B-deildarinnar 2023.

FRÉTTIR21.03.2025, 06:00

Ana Bral og Gná í ÍR (Staðfest)

ÍR-ingar hafa fengið tvo sterka leikmenn inn í hópinn fyrir komandi tímabil en félagið staðfesti komu þeirra Önu Bral og Gná Elíasdóttur.

FRÉTTIR20.03.2025, 21:09

Simon Tibbling í Fram (Staðfest)

Sænski miðjumaðurinn Simon Tibbling hefur samið um að leika með Fram á komandi tímabili en félagið greinir frá þessu í kvöld.

FRÉTTIR20.03.2025, 14:00

Fylkir fær spænskan kantmann (Staðfest)

Fylkir hefur fengið Pablo Aguilera Simon í sínar raðir, hann er spænskur vinstri kantmaður sem spilaði síðast með liði Marshall háskólans í Bandaríkjunum. <b>Uppfært 21. mars:</b> Fylkir tilkynnti að Simon hefði skrifað undir tveggja ára samning við félagið. Hann er með gælunafnið Chicha og er26 ára. Hann er uppalinn hjá Valencia og Elche og hefur spilað í neðri deildum Spánar.

FRÉTTIR20.03.2025, 11:47

Arnar Smári í Grindavík (Staðfest)

Arnar Smári Arnarsson er genginn til liðs við Grindavík og hefur skrifað undir þriggja ára samning við félagið. Þetta kemur fram á samfélagsmiðlum félagsins í dag en Fótbolti.net sagði frá yfirvofandi félagaskiptum í gær. Arnar Smári kemur til Grindavíkur frá Breiðabliki þar sem hann hefur leikið allan sinn feril.

FRÉTTIR20.03.2025, 10:30

Tindastóll fær bandarískan sóknarmann (Staðfest)

Makala Woods er gengin í raðir Tindastóls en hún kemur frá Bandaríkjunum. Hún er fædd árið 2002 og er sóknarmaður. Tindastóll missti í vetur Jordyn Rhodes, markahæsta leikmann sinn á síðasta tímabili, til Vals. Rhodes kom í Tindastól eftir að hafa spilað með liði Kentucky háskólans og leita Sauðkrækingar aftur þangað.

FRÉTTIR19.03.2025, 16:00

Helgi Guðjóns framlengir við Víking (Staðfest) - „Eykur það enn frekar mikilvægi hans fyrir Víking"

Víkingur tilkynnti í dag að Helgi Guðjónsson væri búinn að framlengja samning sinn við Víking um þrjú ár og er nú samningsbundinn út árið 2028. Fyrri samningur hefði runnið út eftir komandi tímabil. Helgi er Borgfirðingur sem uppalinn er hjá Skallagrím og Fram og hafa Framarar reynt að fá hann aftur í sínar raðir síðasta hálfa árið en Víkingur hefur ekki viljað selja sinn mann. Helgi er sóknarmaður sem kom frá Fram eftir tímabilið 2019 og hefur unnið fimm titla með Víkingi. Hann var í byrjunarliði liðsins í umspilsleikjunum gegn Panathinaikos í Sambandsdeildinni í síðasta mánuði.

FRÉTTIR19.03.2025, 13:30

Matias Niemelä semur við Vestra (Staðfest) - Lánaður í Grindavík

Vestri tilkynnti í dag að félagið væri búið að semja við finnska markmanninn Matias Niemelä en hann gerir þriggja ára samning við félagið. Í sömu tilkynningu er sagt frá því að Niemelä fari á láni í Grindavík og spili því í Lengjudeildinni í sumar. Hann er 23 ára og var á sínum tíma finnskur unglingalandsliðsmaður.

FRÉTTIR19.03.2025, 10:09

Ari Sigurpáls til Elfsborg (Staðfest)

Ari Sigurpálsson er genginn í raðir sænska félagsins Elfsborg en félagið kaupir hann frá Víkingi. Ari skrifar undir samning út tímabilið 2029 Ari er sóknarmaður sem fæddur er árið 2003. Hann er uppalinn hjá HK, hélt út til Ítalíu, var þar í tvö og hálft ár en sneri heim til Íslands frá Bologna árið 2022 og samdi við Víking. Hann skoraði 33 mörk í 126 leikjum með Víkingi. Ari á að baki 36 leiki fyrir yngri landslið Íslands og í þeim skoraði hann fimm mörk. Hann varð bikarmeistari sumarið 2022, tvöfaldur meistari 2023 og á síðasta tímabili var hann hluti af Víkingsliði sem skrifaði söguna í Evrópu með því að komast í umspil um sæti í 16-liða úrslitum Sambandsdeildarinnar, en Ari var lykilmaður í því liði. Hann skoraði jöfnunarmark Víkings í Austurríki gegn LASK Linz til að tryggja Víkingum í umspiliði.

FRÉTTIR18.03.2025, 18:15

Elmar Atli dæmdur í tveggja mánaða bann (Staðfest)

Elmar Atli Garðarsson, fyrirliði Vestra, hefur verið dæmdur í tveggja mánaða bann fyrir brot á veðmálareglum. Aga- og úrskurðarnefnd KSÍ tók málið fyrir í dag og komst að þessari niðurstöðu.

FRÉTTIR18.03.2025, 12:37

Portúgalskur miðvörður til Dalvíkur (Staðfest)

Miguel Goncalves er genginn í raðir Dalvíkur/Reynis og verður með liðinu í 2. deild í sumar. Félagið tilkynnir um komu hans í dag. Goncalves er 25 ára portúgalskur miðvörður sem hafði til þessa spilað allan sinn feril í heimalandinu, og það við góðan orðstír.

FRÉTTIR18.03.2025, 11:00

Tindastóll fær bandarískan varnarmann (Staðfest)

Tindastóll hefur krækt í bandarískan varnarmann fyrir komandi átök í Bestu deildinni en Katherine Grace Pettet er gengin í raðir félagsins. Pettet er fædd árið 2002 og er varnarmaður. Hún var á sínum tíma fyrirliði í sínu háskólaliði. Hún spilaði með liði háskólans í Missouri og fór svo í háskólann í Pittsburgh og spilaði með Pittsburgh Panthers á síðasta ári.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.