Leifur Andri leggur skóna á hilluna (Staðfest) - „Geng stoltur frá borði“
Fótboltaskór Leifs Andra Leifssonar, fyrirliða HK, eru komnir upp í hillu en þessu greinir félagið frá í kvöld.
Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.
Niðurstöður
Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25104 niðurstöðum.
Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.
Fótboltaskór Leifs Andra Leifssonar, fyrirliða HK, eru komnir upp í hillu en þessu greinir félagið frá í kvöld.
Selfyssingar hafa nælt sér í öflugan varnarmann fyrir komandi leiktíð en sænski leikmaðurinn Alexander Berntsson er genginn í raðir félagsins frá KÍ/Klaksvík í Færeyjum.
Njarðvík tilkynnti í dag að Þorsteinn Örn Bernharðsson hefði framlengt samning sinn við félagið út komandi tímabil. Hann hafði verið samningslaus í vetur. Þorsteinn gekk fyrst í raðir Njarðvíkur fyrir tímabilið 2023 og spilaði þá 19 leiki í Lengjudeildinni en samtals á hann að baki 24 leiki fyrir félagið. Hann missti af öllu síðasta tímabili vegna meiðsla en í tilkynningu Njarðvíkur er sagt að hann sé að ná sér og er fótboltadeildin spennt að sjá hann aftur í grænu treyjunni í sumar.
Valur hefur krækt í virkilega öflugan leikmann fyrir komandi átök í Bestu deild kvenna því Jordyn Rhodes er gengin í raðir félagsins. Rhodes, sem er bandarískur framherji, er fædd árið 2000 og mætti á sína fyrstu æfingu með liðinu í dag. Hún er miill markaskorari og sýndi það svo sannarlega í fyrra þegar hún skoraði 12 mörk í 21 deildarleik með Tindastóli á hennar fyrsta tímabili á Íslandi. Hún skoraði 12 af 26 mörkum Tindastóls eða rétt tæplega helming marka liðsins. Hún var markahæsti leikmaður Bestu deildarinnar á eftir Söndru Maríu Jessen.
Arnar Gunnlaugsson opinberaði sinn fyrsta landsliðshóp, leikmaður Fram skrópaði á æfingu og fyrirliði Vestra braut veðmálareglur. Hér að neðan má sjá lista yfir 20 vinsælustu fréttir Fótbolta.net í síðustu viku, raðað eftir hversu oft þær eru lesnar.
Hinrik Harðarson er genginn til liðs við norska liðið Odd frá ÍA. Odd féll úr efstu deild á síðustu leiktíð. Hinrik er framherji sem fæddur er árið 2004 og er í U21 landsliðshópnum fyrir komandi vináttuleiki. Hinrik er sóknarmaður sem átti gott tímabil í fyrra en það var hans fyrsta tímabil í efstu deild á Íslandi. Hann var keyptur til ÍA frá Þrótti eftir tímabilið 2023. Hinrik skoraði sjö mörk og lagði upp fimm í 26 leikjum í Bestu deildinni í fyrra.
Ægir hefur nælt í argentískan varnarmann fyrir átökin í 2. deild næsta sumar. Sá heitir Ivan Moran en hann hóf ferlinn hjá einu stærsta félagi í Argentínu, Boca Juniors.
Vestri hefur nælt í varnarsinnaðan miðjumann frá Suður Afríku fyrir átökin í Bestu deildinni í sumar. Sá heitir Thibang Sindile Theophilus Phete, betur þekktur sem Cafu Phete.
Fram hefur nælt sér í bandarískan bakvörð fyrir átökin í Bestu deildinni í sumar. Hún heitir Kam Pickett og kemur úr Clemson skólanum í bandaríska háskólaboltanum.
Nýja átta sekúndna reglan var samþykkt af stjórn KSÍ fyrr í þessum mánuði og verður innleidd í íslenska fótboltann frá og með 1. umferð Mjólkurbikarsins sem hefst 28. mars. Þetta kemur fram á heimasíðu KSÍ og hafði Þóroddur Hjaltalín, sem starfar við dómaramál hjá KSÍ, staðfest tíðindin í samtali við Fótbolta.net fyrr í dag. Reglan er þannig að ef markmaður heldur á boltanum í átta sekúndur þá skal andstæðingurinn fá hornspyrnu. Gamla sex sekúndna reglan, þar sem dæmi átti óbeina aukaspyrnu ef markmaður hélt á boltanum í sex sekúndur, er ekki lengur til.
Grótta tilkynnti í dag um komu tveggja leikmanna sem munu spila með liðinu í 2. deild í sumar. Dagur Bjarkason er kominn frá grönnunum í KR og Halldór Hilmir Thorsteinson er kominn frá Fram. <i>„Dagur, sem verður 19 ára gamall á árinu, er fjölhæfur leikmaður sem getur leikið alls staðar í varnarlínunni sem og á miðju. Þrátt fyrir ungan aldur á hann að baki 30 leiki með KV ásamt einum bikarleik og þremur Lengjubikarleikjum með KR. Dagur hefur komið af krafti inn í Gróttuliðið síðustu vikur og byrjað alla þrjá leiki liðsins í Lengjubikarnum,"</I> segir í tilkynningu Gróttu.
Markvörðurinn Sindri Kristinn Ólafsson er mættur aftur heim í Keflavík frá FH.
George Nunn, sem lék með HK í Bestu deildinni á síðasta tímabil, er genginn í raðir Cobh Ramblers í Írlandi. Nunn er Íri sem var á sínum tíma á mála hjá Chelsea og Derby. Hann á að baki tvo leiki fyrir U19 landslið Írlands. Nunn er 23 ára sóknarmaður sem skoraði eitt mark og lagði upp eitt í 25 leikjum í Bestu deildinni og tvö mörk í bikarnum.
<I>Bild</i> greinir frá því að Joshua Kimmich hafi náð samkomulagi við Bayern München um nýjan samning til 2029. Í morgun var Kimmich í höfuðstöðvum Bayern ásamt fjölskyldu sinni og ráðgjöfum.
Orri Steinn Óskarsosn er nýr fyrirliði íslenska landsliðsins en frá þessu greindi Arnar Gunnlaugsson, þjálfari landsliðsins, á fréttamannafundi í dag. Orri tekur við hlutverkinu af Aroni EInari Gunnarssyni sem hafði verið í því hlutverki síðan 2012. Orri er framherji sem fæddur er árið 2004 og lék sína fyrstu landsleiki árið 2023. Hann er í dag leikmaður Real Sociedad á Spáni og á að baki 14 landsleiki.
Snorri Þór Stefánsson er genginn til liðs við Fjölni. Snorri er markvörður og fagnar 20 ára afmæli sínu síðar í mánuðinum. Hann er uppalinn hjá Stjörnunni en lék einnig með Þór í 2. flokki.
Georg Ethan Guðjohnsen Mitchell er genginn til liðs við Hamar sem leikur í 4. deild næsta sumar.
Sameiginlegt lið Grindavíkur og Njarðvíkur, Grindavík/Njarðvík, hefur heldur betur fengið liðsstyrk fyrir komandi átök í Lengjudeild kvenna því bandaríski sóknarmaðurinn Brookelynn Entz er búin að skrifa undir samning sem gildir út komandi tímabil. Brookelynn er á leið í sitt fjórða tímabil á Íslandi en hún kom fyrst til landsins árið 2022 og lék þá með Val. Hún hefur svo síðustu tvö ár spilað með HK í Lengjudeildinni, skoraði tíu mörk 2023 og 13 mörk 2024. Hún er sóknarsinnaður miðjumaður, fædd árið 1998, og getur spilað allar sóknarstöðurnar.
Markmaðurinn Íris Dögg Gunnarsdóttir hefur lagt hanskana á hilluna en þetta staðfestir hún við Fótbolta.net í dag. Íris Dögg er fædd árið 1989 og lék á sínum ferli 307 meistaraflokksleiki. Hún er uppalin hjá Fylki og lék sína fyrstu meistaraflokksleiki árið 2004. Hún lék einnig með KR, Fylki, FH, Haukum, Gróttu, Aftureldingu, Breiðabliki, Þrótti og Val á sínum ferli. Þess má geta að Íris er með fjögur mörk skoruð á ferlinum, öll úr vítaspyrnum.
Grótta hefur nælt í nælt í bandarískan leikmann en sú heitir Ryanne Molenaar en hún mun taka slaginn með liðinu í Lengjudeildinni næsta sumar. Molenaar hefur leikið í Bandaríkjunum og Austurríki á sínum ferli.