Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögnum skilaði 24402 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR09.02.2025, 10:00

Dagur Austmann leggur skóna á hilluna (Staðfest)

Dagur Austmann Hilmarsson hefur lagt skóna á hilluna en hann staðfesti það í samtali við Fótbolta.net. Rætt var um að hann væri búinn að leggja skóna á hilluna í útvarpsþættinum Fótbolta.net í gær og í samtali við fréttamann staðfesti að hann að það væri rétt. Dagur segir ástæðuna vera þrálát meiðsli. <i>„Aðalástæðan eru meiðsli, skrokkurinn á mér er alltaf að gefa sig,"</I> segir Dagur sem hefur mikið verið fjarri vegna meiðsla á sínum ferli.

FRÉTTIR07.02.2025, 15:18

Harley Willard velur Selfoss fram yfir Þór (Staðfest)

Harley Willard er búinn að skrifa undir eins árs samning við Selfoss en fyrr í þessari viku var sagt frá því að hann væri við það að ganga í Þór. Willard er Skoti sem fer á Selfoss eftir tvö ár hjá KA. Samkvæmt heimildum var það langt komið að hann færi í Þór en hann hafði áður verið í viðræðum við Selfoss sem kom með betrumbætt tilboð sem Willard ákvað að samþykkja.

FRÉTTIR07.02.2025, 10:22

KA kaupir Bjarka Fannar (Staðfest) - Kemur eftir tímabilið

KA hefur krækt í Bjarka Fannar Helgason frá Hetti/Hugin og skrifar Bjarki undir samning við KA út árið 2028. Í tilkynningu H/H er sagt frá því að hann muni spila með liðinu í sumar áður en hann fer endanlega til Akureyrar. Það er sterk tenging milli félaganna því KA-maðurinn Ívar Arnbro Þórhallsson var á láni hjá H/H síðasta sumar og Árni Veigar Árnason er dæmi um annan leikmann sem uppalinn er hjá Hetti og er samningsbundinn KA. Bjarki Fannar er miðjumaður sem fæddur er árið 2005. Hann lék 21 deildarleik með H/H síðasta sumar og skoraði fimm mörk í 2. deild. Hann er uppalinn hjá Hetti en var árið 2021 í yngri flokkum Fjölnis.

FRÉTTIR07.02.2025, 10:00

Einar Karl heim í FH (Staðfest)

Miðjumaðurinn Einar Karl Ingvarsson hefur fengið félagaskipti heim í FH eftir að hafa leikið með Grindavík síðustu ár. Einar Karl hefur verið að æfa með FH upp á síðkastið og einnig spilað æfingaleiki með liðinu.

FRÉTTIR07.02.2025, 09:39

Jakob Gunnar í Þrótt frá KR (Staðfest)

Húsvíkingurinn Jakob Gunnar Sigurðsson hefur skrifað undir samning um að leika með Þrótti á þessu tímabili. Hann kemur þangað á láni frá KR. Jakob er uppalinn í Völsungi og vakti mikla athygli á síðasta ári þegar hann gerði 25 mörk í 22 leikjum í 2. deildinni. Hann var valinn bæði besti og efnilegasti leikmaður deildarinnar.

FRÉTTIR06.02.2025, 19:23

Anton Logi heim í Breiðablik (Staðfest)

Anton Logi Lúðvíksson er mættur aftur heim í Breiðablik en hann kemur frá norska liðinu Haugesund. Hann skrifar undir fjögurra ára samning við Breiðablik. Óskar Hrafn Þorvaldsson, fyrrum þjálfari Blika, fékk Anton Loga til sín í janúar í fyrra til norska liðsins Haugesund en Anton fékk ekki mikið að spila eftir að Óskar hætti þar í maí. Alls kom hann við sögu í 24 leikjum með Haugesund.

FRÉTTIR06.02.2025, 13:42

Mathias Rosenörn í FH (Staðfest)

Danski markvörðurinn Mathias Rosenörn er genginn í raðir FH eftir að hafa verið á mála hjá Stjörnunni á síðasta tímabili. Hann gerir tveggja ára samning við Fimleikafélagið.

FRÉTTIR06.02.2025, 13:15

Katie Cousins aftur í Þrótt (Staðfest) - „Einn besti erlendi leikmaðurinn sem leikið hefur á Íslandi"

Katherine Amanda Cousins, eða Katie Cousins eins og hún er langoftast kölluð, hefur skrifað undir tveggja ára samning við Þrótt. Hún er að snúa aftur eftir eins árs veru hjá Val en þetta er í þriðja sinn sem Katie spilar með Þrótti. Hún kom fyrst fyrir tímabilið 2021 og var í eitt tímabil. Hún mætti svo aftur fyrir tímabilið 2023 og var aftur í eitt tímabil. Öll þrjú tímabilin á Íslandi hefur Katie verið einn allra besti leikmaður Bestu deildarinnar. Í öll þrjú skiptin var Katie valin í lið ársins hér á Fótbolti.net.

FRÉTTIR06.02.2025, 12:07

Katla María í FH (Staðfest)

FH tilkynnti í dag að Katla María Þórðardóttir væri gengin í raðir f?lagsins. Hún skrifar undir tveggja ára samning við Fimleikafélagið. Katla María er 23 ára og kemur til FH eftir ár með Örebro í Svíþjóð. Hún getur bæði spilað á miðju og í vörninni. Hún hefur spilað með Keflavík, Fylki, Selfossi og Örebro á sínum ferli.

FRÉTTIR06.02.2025, 11:07

HK kaupir Þorstein Aron (Staðfest)

Þorsteinn Aron Antonsson er genginn í raðir HK en félagið hefur náð samkomulagi við Val um kaup á varnarmanninum. Önnur félög höfðu augastað á honum en HK varð lendingin. Þorsteinn Aron er 21 árs miðvörður sem gekk í raðir Vals fyrir rúmu ári síðan og lék á láni hjá HK á síðasta tímabili. Selfyssingurinn gerir þriggja ára samning við HK. Á síðasta tímabili kom hann við sögu í 25 leikjum og skoraði þrjú mörk, voru öll þeirra sigurmörk gegn Fram.

FRÉTTIR06.02.2025, 10:46

Willian kominn aftur í Fulham (Staðfest)

<i>„Velkominn aftur, Willian,"</i> skrifar Fulham á samfélagsmiðla sína þar sem félagið staðfestir endurkomu Brasilíumannsins Willian til félagsins. Willian, sem er 36 ára, var án félags eftir að hafa rift samningi sínum við gríska félagið Olympiakos. Hann skrifar undir samning við Fulham út þetta tímabilið. Willian var með Fulham 2022–2024 þar sem hann gerði 10 mörk og gaf 7 stoðsendingar í 67 leikjum. Willian hefur átt frábæran feril og telur Fulham að hann eigi enn eitthvað eftir á tankinum. Brasilíumaðurinn spilaði áður með Arsenal og Chelsea í ensku úrvalsdeildinni og þá lék hann einnig með Corinthians, Anzhi og Shakhtar Donetsk.

FRÉTTIR05.02.2025, 15:00

Anton Fannar í Leikni (Staðfest)

Anton Fannar Kjartansson er genginn í raðir Leiknis en hann kemur til félagsins frá Ægi. Anton Fannar er tvítugur varnarmaður sem skrifar undir tveggja ára samning við Leikni. Hann er uppalinn hjá Breiðabliki og hóf meistaraflokksferilinn sinn með Ægi sumarið 2023. Á síðasta tímabili lék hann 22 leiki í 2. deild og skoraði tvö mörk. Anton Fannar er þriðji leikmaðurinn sem Leiknir krækir í þennan veturinn. Liðið endaði í 8. sæti Lengjudeildarinnar í fyrra og þjálfari liðsins er Óli Hrannar Kristjánsson.

FRÉTTIR05.02.2025, 11:35

Hákon Dagur heim í ÍR (Staðfest) - Renato og Guðjón Máni framlengja

ÍR-ingar hafa fengið öflugan liðsstyrk fyrir komandi átök í Lengjudeildinni því þeir hafa fengið uppalinn leikmann aftur í sínar raðir. Hann er sóknarsinnaður miðjumaður sem getur einnig leyst stöðu kantmanns og framherja. Hákon Dagur Matthíasson er mættur aftur frá Víkingi en hann skipti frá ÍR fyrir tímabilið 2022. Fyrstu tvö tímabilin lék hann með 2. flokki Víkings en á síðasta tímabili kom hann á láni til ÍR. Hákon Dagur er fæddur árið 2005 og á að baki fjóra leiki fyrir U17 landsliðið. Á síðasta tímabili 20 leikjum með ÍR og skoraði tvö mörk. Hann skrifar undir samning við ÍR sem gildir út 2027.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.