Fotbolti.net
05.02.25 - 15:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Anton Fannar í Leikni (Staðfest)

Anton Fannar í Leikni (Staðfest)
Canon

Mynd: Leiknir

Lengjudeildin
Anton Fannar Kjartansson er genginn í raðir Leiknis en hann kemur til félagsins frá Ægi.

Anton Fannar er tvítugur varnarmaður sem skrifar undir tveggja ára samning við Leikni.

Hann er uppalinn hjá Breiðabliki og hóf meistaraflokksferilinn sinn með Ægi sumarið 2023. Á síðasta tímabili lék hann 22 leiki í 2. deild og skoraði tvö mörk.

Anton Fannar er þriðji leikmaðurinn sem Leiknir krækir í þennan veturinn. Liðið endaði í 8. sæti Lengjudeildarinnar í fyrra og þjálfari liðsins er Óli Hrannar Kristjánsson.
Komnir
Axel Freyr Harðarson frá Fjölni
Dagur Ingi Hammer Gunnarsson frá Grindavík
Anton Fannar Kjartansson frá Ægi

Farnir
Omar Sowe í ÍBV
Hjalti Sigurðsson í KR
Róbert Hauksson í Fram
Viktor Freyr Sigurðsson í Fram
Arnór Ingi Kristinsson í ÍBV
Ósvald Jarl Traustason hættur

Samningslausir
Bjarki Arnaldarson (2003)
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.