Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögnum skilaði 24405 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR21.12.2024, 10:48

Guðmunda Brynja heim í Selfoss (Staðfest)

Guðmunda Brynja Óladóttir er komin aftur heim í Selfoss eftir átta ára fjarveru en hún gerir eins árs samning við uppeldisfélagið. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu í dag.

FRÉTTIR21.12.2024, 08:00

Anja Ísis Brown í HK (Staðfest)

Anja Ísis Brown er gengin til liðs við HK en hún kemur frá ÍR. Hún er fædd árið 2002 og er uppalin hjá Gróttu. Þar hóf hún meistaraflokksferil sinn árið 2018 þar sem hún kom við sögu í 13 leikjum, 11 í Lengjudeildinni og tveimur í Mjókurbikarnum.

FRÉTTIR21.12.2024, 06:00

Lovísa í Selfoss (Staðfest)

Lovísa Guðrún Einarsdóttir er gengin til liðs við Selfoss en hún kemur frá ÍR. Lovísa er fædd árið 2000 en hún hefur verið fyrirliði ÍR undanfarin ár.

FRÉTTIR20.12.2024, 13:16

Jónþór Atli í ÍR (Staðfest)

ÍR tilkynnti í dag að Jónþór Atli Ingólfsson væri genginn í raðir félagsins og skrifar hann undir tveggja ára samning. Hann kemur til ÍR frá Augnabliki þar sem hann hefur spilað síðustu tvö tímabil en hann er uppalinn hjá Breiðabliki. Hann er 19 ára og er að upplagi hægri bakvörður. Hann er fyrsti leikmaðurinn sem ÍR sækir eftir að síðasta tímabili lauk.

FRÉTTIR20.12.2024, 12:50

Dominic Furness tekinn við Kormáki/Hvöt (Staðfest)

Kormákur/Hvöt tilkynnti í vikunni, í gegnum aðdáendasíðu Kormáks, að Dominic Louis Furness væri tekinn við sem þjálfari liðsins. Hann tekur við af Aco Pandurevic. Englendingurinn Dominic hefur þjálfað lið Tindastóls undanfarin ár og stýrði liðinu upp úr 4. deildinni síðasta sumar. Sem leikmaður lék hann víða, t.d. með Tindastóli og FH hér á landi.

FRÉTTIR20.12.2024, 10:46

Unglingalandsliðsmaður til ÍA (Staðfest)

Brynjar Óðinn Atlason er genginn í raðir ÍA en hann kemur til félagsins frá Hamri. Brynjar Óðinn er 15 ára en hefur þrátt fyrir ungan aldur leikið 28 leiki fyrir meistaraflokk Hamars og skorað í þeim tvö mörk. <i>„Brynjar Óðinn er öflugur hægri bakvörður með mikla hlaupagetu og góðar fyrirgjafir. Hann er góður varnarlega og gefur mikið af sér á vellinum." „Brynjar hefur verið í æfingahópum U-16 ára landsliðs Íslands undanfarna mánuði og var sömuleiðis valinn í þann hóp fyrir komandi verkefni í janúar,"</i> segir í tilkynningu ÍA.

FRÉTTIR19.12.2024, 14:49

Pereira orðinn stjóri Úlfanna (Staðfest)

Úlfarnir hafa staðfest ráðningu á Vitor Pereira en hann hefur gert átján mánaða samning og tekur við sem stjóri af Gary O’Neil sem var rekinn á sunnudag. Portúgalinn Pereira kemur frá Al-Shabab í Sádi-Arabíu en á ferilskrá hans eru landstitlar í Grikklandi, Portúgal og Kína. Wolves er í næst neðsta sæti í ensku úrvalsdeildinni og hefur tapað fjórum síðustu leikjum. Fyrsti leikur liðsins með Pereira við stjórnartaumana verður gegn Leicester á sunnudag, liði sem er tveimur sætum og fimm stigum fyrir ofan.

FRÉTTIR18.12.2024, 21:21

Choupo-Moting í MLS-deildina (Staðfest)

Kamerúnski sóknarmaðurinn Eric Maxim Choupo-Moting hefur fundið sér nýtt félag eftir að hafa yfirgefið Bayern München í sumar, en hann er genginn í raðir New York Red Bulls í Bandaríkjunum.

FRÉTTIR17.12.2024, 18:34

Freyr látinn fara frá Kortrijk (Staðfest)

Freyr Alexandersson er ekki lengur þjálfari Kortrijk. Frá þessu greinir belgíska félagið rétt í þessu. Í tilkynningu félagsins er sagt frá því að ákveðið hefði verið að leiðir myndu skilja. Félagið þakkar Frey fyrir sitt starf og að hafa náð að halda liðinu uppi á síðasta tímabili eftir frábæran endasprett. Aðstoðarmaður Freys, Jonathan Hartmann, yfirgefur einnig Kortrijk.

FRÉTTIR17.12.2024, 16:15

Jana Sól heim í Stjörnuna (Staðfest)

Jana Sól Valdimarsdóttir er gengin í raðir Stjörnunnar á nýjan leik eftir fjögurra ára fjarveru. Jana, sem er fædd árið 2003, er uppalin hjá Stjörnunni en gekk í raðir Vals fyrir tímabilið 2021. Hún lék svo með HK á síðasta tímabili. Hún lék á sínum tíma níu leiki fyrir unglingalandsliðin og skoraði þrjú mörk. Á síðasta tímabili skoraði hún fimm mörk í 13 leikjum með HK í Lenjgudeildinni.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.