Leikmaður Atalanta orðaður við Man Utd - Ferguson gæti farið til West Ham - Liverpool og PSG reyna við Cherki
banner
   fös 20. desember 2024 12:50
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Dominic Furness tekinn við Kormáki/Hvöt (Staðfest)
Dominic Furness.
Dominic Furness.
Mynd: Fótbolti.net - J.L.
Kormákur/Hvöt tilkynnti í vikunni, í gegnum aðdáendasíðu Kormáks, að Dominic Louis Furness væri tekinn við sem þjálfari liðsins. Hann tekur við af Aco Pandurevic.

Englendingurinn Dominic hefur þjálfað lið Tindastóls undanfarin ár og stýrði liðinu upp úr 4. deildinni síðasta sumar. Sem leikmaður lék hann víða, t.d. með Tindastóli og FH hér á landi.

„Dominic, sem kemur frá Middlesborough í Norður-Jórvíkurskíri, þjálfaði sumurin 2023 og 2024 lið Tindastóls, þar sem hann þótti brydda upp á skemmtilegum bolta. Sigraði liðið til að mynda 4. deildina í sumar með talsverðum yfirburðum - skoraði mikið og fékk á sig fátt.

Sem leikmaður flaug hann hátt og víða, lék til að mynda með liðum í Ameríku, Svíþjóð, Ástralíu og Tælandi svo eitthvað sé nefnt. Þá lék hann með Tindastóli í B-deildinni fyrir rúmum áratug, sem skilaði honum í efstu deild með F.H. ári síðar.

Aðdáendasíðan lýsir yfir gríðarlegri spennu fyrir þessari ráðningu og megi hún verða til mikillar lukku. Þegar sameiginlegur áhugi fyrir samstarfi þjálfara og liðs er jafn mikill og í þessu tilviki getur ekki annað en góðir hlutir verið framundan!"
segir í færslu á aðdáendasíðunni.

Þá hefur einnig verið greint frá því að Sigurður Pétur Stefánsson og Jón Gísli Stefánsson eru búnir að framlengja samninga sína við félagið. Kormákur/Hvöt endaði í 10. sæti 2. deildar og verður því áfram í þeirri deild á næsta tímabili.
Athugasemdir
banner
banner
banner