Keflavík er búin að krækja sér í flottan liðsstyrk fyrir komandi átök í Lengjudeild kvenna.
Keflavík er búið að klófesta bandarískan kantmann sem lék síðast með háskólaliði American University frá Washington D.C., höfuðborg Bandaríkjanna.
Hún heitir Olivia Simmons og er 21 árs gömul. Það verður áhugavert að fylgjast með henni reyna fyrir sér í Lengjudeildinni eftir áramót.
Athugasemdir