Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögnum skilaði 24406 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR25.11.2024, 16:35

Lúkas Magni laus undan samningi (Staðfest)

Á föstudag greindi Kristján Óli Sigurðsson frá því á <i>X</I> að Lúkas Magni Magnason væri búinn að rifta samningi sínum við KR. Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari og yfirmaður fótboltamála hjá KR, staðfesti við Fótbolta.net að búið væri að fella niður samning Lúkasar við félagið. Lúkas Magni er 19 ára varnarmaður sem kom í KR fyrir tímabilið 2023 frá Breiðabliki. Hann á að baki sjö leiki fyrir unglingalandsliðin.

FRÉTTIR24.11.2024, 22:07

Eiður Gauti í KR (Staðfest)

Knattspyrnudeild KR tilkynnti fyrri í dag um kom Atla Hrafns Andrasonar til félagsins og nú rétt í þessu kynnti félagið komu Eiðs Gauta Sæbjörnssonar en báðir koma frá HK.

FRÉTTIR24.11.2024, 20:42

Atli Hrafn heim í KR (Staðfest)

Atli Hrafn Andrason er kominn aftur heim í KR en hann kemur til félagsins frá HK. Þetta kemur fram í tilkynningu frá knattspyrnudeild félagsins í dag.

FRÉTTIR24.11.2024, 19:13

Arnór Gauti í Grindavík (Staðfest)

Varnarmaðurinn Arnór Gauti Úlfarsson er genginn í raðir Grindavík frá ÍR. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Grindvíkingum í dag.

FRÉTTIR24.11.2024, 18:53

Birkir Valur og Bragi Karl í FH (Staðfest)

FH-ingar hafa fengið öfluga viðbót við leikmannahópinn en þeir Birkir Valur Jónsson og Bragi Karl Bjarkason eru gengnir til liðs við félagið.

FRÉTTIR24.11.2024, 13:15

Frederik Schram aftur til Roskilde (Staðfest)

<p>Frederik Schram staðfesti það fyrr í þessum mánuði að hann muni ekki spila áfram á Íslandi eftir að samningur hans við Val rann út.</p><p>Hann hefur nú fundið sér nýtt félag en hann snýr aftur til Roskilde í Danmörku. Hann skrifar undir samning sem gildir til ársins 2027.</p>

FRÉTTIR23.11.2024, 08:00

Jóhanna Elín í Víking (Staðfest)

Knattspyrnudeild Víkings hefur fengið til félagsins hina 18 ára gömlu Jóhönnu Elínu Halldórsdóttur en hún kemur til félagsins frá Selfossi.

FRÉTTIR22.11.2024, 15:18

Valgeir Valgeirs í Breiðablik (Staðfest)

Breiðablik hefur staðfest að Valgeir Valgeirsson sé genginn í raðir félagsins. Hann lék síðast með Örebro í Svíþjóð en er uppalinn hjá HK, nágrönnum Blika. Fótbolti.net sagði frá því fyrst í gær að Valgeir væri að ganga í raðir Breiðabliks. Á endanum stóð valið á milli Blika og Víkings. Samningur Valgeirs við Blika gildir til 2028.

FRÉTTIR22.11.2024, 13:32

Eyþór Wöhler og Hrafn Guðmunds rifta við KR (Staðfest)

KR tilkynnti rétt í þessu að Eyþór Aron Wöhler væri að kveðja félagið. Sagt er að félagið og leikmaðurinn hafi komist að samkomulagi um að Eyþóri sé frjálst að leita á önnur mið. Eyþór gekk í raðir KR skömmu eftir að tímabilið 2024 hófst, spilaði 22 leiki í deild og bikar og skoraði í þeim þrjú mörk. <i>„Við þökkum Eyþóri fyrir veru hans í KR og óskum honum góðs gengis í hverju því sem hann tekur sér fyrir hendur,“</I> segir Páll Kristjánsson, formaður knattspyrnudeildar KR. <i>„Ég kveð KR með söknuði, þetta er frábær klúbbur með einstaka stuðningsmenn og ég óska klúbbnum alls hins besta. Ég lagði hart að mér og vildi auðvitað fá meiri spiltíma en ég geri mér grein fyrir því og virði að það er þjálfarinn sem velur liðið og það eru margir góðir knattspyrnumenn í KR sem ég er í samkeppni við. Því þarf ég að stíga eitt skref til baka og fara í klúbb þar sem ég fæ meiri spiltíma og get sannað mig sem alvöru senter. Og það ætla ég að gera,”</I> er haft eftir Eyþóri í tilkynningu KR. Eyþór er 22 ára sóknarmaður sem uppalinn er hjá Aftureldingu og hefur einnig leikið með Breiðabliki og ÍA. Hann á að baki fimmtán leiki og fjögur mörk fyrir yngri landsliðin.

FRÉTTIR22.11.2024, 12:00

Tómas Atli frá FH í Hauka (Staðfest)

Tómas Atli Björgvinsson er genginn í raðir Haukum. Hann var síðast samningsbundinn FH en lék á láni með KFA í 2. deild í sumar. Hann skoraði eitt mark í deildinni og eitt í bikarnum í sumar. Tómas Atli er nítján ára miðjumaður sem skrifar undir tveggja ára samning á Ásvöllum.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.