Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögnum skilaði 24418 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR18.07.2024, 18:15

Mason Greenwood til Marseille (Staðfest)

Franska félagið Marseille hefur staðfest kaupin á Mason Greenwood frá Manchester United. Hann gerði fimm ára samning og mun klæðast treyju númer 10.

FRÉTTIR18.07.2024, 18:02

Savinho til Man City (Staðfest)

Englandsmeistarar Manchester City hafa staðfest kaupin á brasilíska leikmanninum Savinho en hann kemur til félagsins frá Troyes í Frakklandi.

FRÉTTIR18.07.2024, 15:30

Aubameyang til Al Qadsiah (Staðfest)

Gabonski framherjinn Pierre Emerick Aubameyang er genginn í raðir Al Qadsiah í Sádi-Arabíu, eftir að hafa leikið með Marseille í Frakklandi í eitt tímabil. Þessi 35 ára leikmaður skoraði 30 mörk í 51 leik fyrir Marseille en hann kom til félagsins eftir að hafa floppað hjá Chelsea þar sem hann skoraði einungis þrjú mörk í 21 leik eftir að hafa komið frá Barcelona.

FRÉTTIR18.07.2024, 13:54

Guirassy til Dortmund (Staðfest)

Dortmund tilkynnti rétt í þessu að Serhou Guirassy væri formlega orðinn leikmaður félagsins. Hann er keyptur frá Stuttgart þar sem hann átti frábært tímbil og var eftirsóttur af mörgum félögum. Guirassy er landsliðsmaður Gíneu, 28 ára framherji, sem skrifar undir fjögurra ára samning.

FRÉTTIR18.07.2024, 12:19

Víkingur lánar Kára til Njarðvíkur og færir Ísak Daða til (Staðfest)

Víkingur hefur lánað hinn 19 ára gamla Kára Vilberg Atlason til Njarðvíkur í Lengjudeildinni. Kári er uppalinn Bliki sem skrifaði undir samning við Víking fyrir síðasta tímabil. Hann kom við sögu í leikjum með meistaraflokki í vetur og kom inn á í sigrinum gegn Víði í 32-liða úrslitum Mjólkurbikarsins. Hann verður hjá Njarðvík út tímabilið. Hann er sóknarsinnaður miðjumaður sem fór á reynslu til FC Nordsjælland og var í úrtakshóp U17 landsliðsins á sínum tíma.

FRÉTTIR18.07.2024, 12:18

Milenkovic til Forest (Staðfest)

Enska úrvalsdeildarfélagið Nottingham Forest hefur tilkynnt um komu varnarmannsins Nikola Milenkovic frá Fiorentina. Þessum 26 ára Serba er ætlað að fylla skarð miðvarðarins Moussa Niakhate sem var seldur til Lyon í Frakklandi. Milenkovic á 56 landsleiki fyrir Serbíu og lék alla leiki liðsins á nýafstöðnu Evrópumóti. Hann hóf feril sinn hjá Partizan í Belgrad. Milenkovic spilaði 264 leiki fyrir ítalska félagið, skorað sautján mörk og átt fimm stoðsendingar.

FRÉTTIR18.07.2024, 11:30

41 árs Reina til Como (Staðfest)

Pepe Reina, fyrrum markvörður Napoli og Liverpool, hefur samið við ítalska félagið Como sem er nýliði í ítölsku A-deildinni. Reina hefur verið hjá Villarreal undanfarin tvö tímabil en samningur hans rann út í júní.

FRÉTTIR18.07.2024, 11:22

Helgi Hafsteinn til Álaborgar (Staðfest)

Helgi Hafsteinn Jóhannsson er genginn í raðir danska félagins Álaborgar frá uppeldisfélaginu Grindavík. Frá þessu greinir hann sjálfur á Instagram reikningi sínum en félagaskiptin hafa legið í loftinu eins og lesendur Fótbolta.net vita.

FRÉTTIR18.07.2024, 10:08

Natasha Anasi í Val (Staðfest)

Natasha Anasi hefur skrifað undir samning við Val og er gengin í raðir félagsins frá Brann í Noregi. Fótbolti.net sagði frá því í síðustu viku að hún væri að ganga í raðir Íslandsmeistara Vals.

FRÉTTIR17.07.2024, 22:30

Leikmaður FH lánaður í ÍR (Staðfest)

<p>ÍR-ingar hafa komið mörgum á óvart í Lengjudeildinni í sumar. Liðið situr í 4. sæti deildarinnar og spila við Keflvíkinga í Mjóddinni á morgun. Með sigri og öðrum hagstæðum úrslitum gætu Breiðhyltingar farið upp í 2. sætið.</p>

FRÉTTIR17.07.2024, 19:00

Mathew Ryan til Roma (Staðfest)

Ítalska félagið Roma hefur staðfest félagaskipti ástralska markvarðarins Mathew Ryan en hann kemur á frjálsri sölu.

FRÉTTIR17.07.2024, 17:30

Ipswich fær Muric í markið (Staðfest)

Nýliðar Ipswich í ensku úrvalsdeildinni hafa krækt í markvörðinn Arijanet Muric frá Burnley. Muric er landsliðsmarkvörður Kosóvó og lék tíu leiki með Burnley þegar það féll úr ensku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili. Ipswich borgar 10 milljónir punda fyrir þennan 25 ára markvörð en kaupverðið gæti hækkað um 5 milljónir eftir ákvæðum. <i>„Ég er spenntur fyrir því að byrja. Ég sá hvernig liðið spilaði síðasta tímabil og ég tel að leikstíllinn henti mér vel,"</i> sagði Muric í viðtali við miðla Ipswich. Muric hóf aðalliðsferil sinn hjá Manchester City en hann lék 41 leik fyrir Burnley þegar liðið vann Championship-deildina 2022-23 tímabilið. Ipswich hafnaði í öðru sæti Championship-deildarinnar á síðasta tímabili og komst beint upp. Vaclav Hladky var þá aðalmarkvörður liðsins en ekki náðist samkomulag um nýjan samning við hann og því yfirgaf hann félagið í sumar.

FRÉTTIR17.07.2024, 15:40

Jakob Gunnar í KR (Staðfest) - Klárar tímabilið með Völsungi

Hinn sautján ára gamli Jakob Gunnar Sigurðsson hefur skrifað undir þriggja ára samning við KR og gengur til liðs við félagið að loknu yfirstandandi tímabili. Hann mun klára tímabilið með Völsungi þar sem hann hefur vakið gríðarlega athygli og er markahæstur í 2. deildinni með ellefu mörk. Hann hefur verið mjög eftirsóttur en það voru KR-ingar sem unnu baráttuna um sóknarmanninn efnilega.

FRÉTTIR17.07.2024, 14:39

Heitinga ráðinn aðstoðarþjálfari Liverpool (Staðfest)

Liverpool hefur samið við John Heitinga og er hann tekinn við sem aðstoðarmaður Arne Slot sem ráðinn var stjóri liðsins í vor Heitinga þekkir vel til í Liverpoolborg því hann lék á sínum tíma með grönnunum í Everton. Heitinga var hluti af þjálfarateymi David Moyes hjá West Ham í fyrra og var þar áður hjá Ajax.

FRÉTTIR17.07.2024, 14:00

Modric áfram hjá Real Madrid (Staðfest)

Real Madrid tilkynnti í dag að félagið hefði náð samkomulagi við Luka Modric um að hann spili áfram með liðinu í eitt ár til viðbótar. Samningur Króatans rann út fyrr í sumar en nú er hann samningsbundinn út júní á næsta ári.

FRÉTTIR17.07.2024, 13:00

Frá Stjörnunni í frönsku úrvalsdeildina (Staðfest)

Bandaríski varnarmaðurinn Caitlin Cosme hefur yfirgefið Stjörnuna eftir hálft ár hjá félaginu og er gengin í raðir Nantes í Frakklandi. Nantes endaði í 2. sæti frönsku B-deildarinnar á síðasta tímabili og verður í úrvalsdeildinni á komandi tímabili.

FRÉTTIR17.07.2024, 12:18

Alexander Helgi yfirgefur Breiðablik eftir tímabilið (Staðfest)

Breiðablik tilkynnti í dag að eftir að yfirstandandi tímabili lýkur þá muni Alexander Helgi Sigurðarson yfirgefa félagið og leita annað. <i>„Er það niðurstaða samtala milli hans og Breiðabliks að endurnýja ekki núgildandi samning,"</I> segir í tilkynningu Breiðabliks.

FRÉTTIR17.07.2024, 11:37

Cecilía til Inter (Staðfest)

Cecilía Rán Rúnarsdóttir er gengin í raðir ítalska félagsins Inter á láni frá þýsku meisturunum í Bayern Munchen. Landsliðsmarkvörðurinn var í leit að liði þar sem hún fengi mikið að spila á komandi tímabili eftir talsverða bekkjarsetu í bland við erfið meiðsli hjá Bayern.

FRÉTTIR17.07.2024, 11:00

Lucy Bronze í Chelsea (Staðfest)

Enska landsliðskonan Lucy Bronze er gengin í raðir Englandsmeistara Chelsea. Bronze kemur til Chelsea á frjálsri sölu eftir að hafa yfirgefið Barcelona á dögunum. Hún skrifar undir tveggja ára samning við Chelsea.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.