Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögnum skilaði 24418 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR17.07.2024, 10:15

Haukar fá tvo úr deildunum fyrir ofan (Staðfest)

Haukar, sem spila í 2. deild, hafa fengið tvo lánsmenn strax eftir að glugginn opnaði og eru þeir þegar komnir með leikheimild fyrir leikinn gegn Völsungi í Fótbolti.net bikarnum í kvöld. Framherjinn stóri og stæðilegi Guðmundur Axel Hilmarsson er kominn á láni frá Lengjudeildarliði Þróttar. Guðmundur er 23 ára og kom einungis við sögu í fjórum leikjum með Þrótti fyrri hluta tímabilsins. Hann lék á sínum tíma 15 leiki fyrir unglingalandsliðin. Ian Jeffs, þjálfari Hauka, þekkir vel til Guðmundar þar sem Jeffsy þjálfaði Þrótt áður en hann tók við Haukum síðasta vetur.

FRÉTTIR17.07.2024, 08:00

Braithwaite rifti við Espanyol (Staðfest)

Danski sóknarleikmaðurinn Martin Braithwaite, sem lék fyrir Barcelona frá 2020 til 2022, er búinn að binda enda á samning sinn við Espanyol í spænska boltanum.

FRÉTTIR17.07.2024, 06:00

Aouar kominn til Al-Ittihad (Staðfest)

Miðjumaðurinn sókarsinnaði Houssem Aouar var á sínum tíma eftirsóttur af stærstu félögum Evrópu eftir frábæra frammistöðu með Lyon í franska boltanum. Nú er hann búinn að skrifa undir samning við sádi-arabíska stórveldið Al-Ittihad.

FRÉTTIR16.07.2024, 20:40

Glen Kamara frá Leeds til Rennes (Staðfest)

Leeds United er búið að staðfesta félagaskipti finnska miðjumannsins Glen Kamara til Rennes í Frakklandi eftir aðeins eitt ár í herbúðum Leeds.

FRÉTTIR16.07.2024, 16:36

Íris Una lánuð í Fylki (Staðfest)

Fylkir tilkynnti í dag að félagið væri búið að krækja í leikmann á láni út tímabilið. Það er Íris Una Þórðardóttir sem kemur frá Þrótti út þetta tímabil. Hún hafði einungis komið við sögu í einum deildarleik með Þrótti fyrri hluta sumars. Íris Una er 23 ára varnarmaður og er uppalin á Suðurnesjunum. Hún hefur spilað 184 KSÍ leiki með Keflavik, Selfoss og Þrótti. Hún kannast vel við sig í Árbænum því hún var leikmaður Fylkis tímabilin 2020 og 2021.

FRÉTTIR16.07.2024, 10:25

Patrik til Kortrijk (Staðfest)

Markvörðurinn Patrik Sigurður Gunnarsson er orðinn fyrsti íslenski leikmaðurinn sem Freyr Alexandersson fær til Kortrijk. Belgíska úrvalsdeildarfélagið tilkynnti um komu Patriks í morgun en hann skrifaðu undir samning til sumarsins 2028. Patrik er 23 ára og er keyptur frá Viking í Noregi en hann á fjóra landsleiki fyrir Ísland. Hann ólst upp hjá Breiðabliki og var í herbúðum Brentford 2018-2022 en var lánaður til Southend, Viborg, Silkeborg og Viking áður en síðarnefnda félagið fékk hann svo til sín. Talsverður fjöldi Íslendinga hefur verið orðaður við Kortrijk síðan Freyr tók við liðinu en hann framkvæmdi kraftaverk þegar hann náði að halda því uppi í deild þeirra bestu í Belgíu á síðustu leiktíð.

FRÉTTIR16.07.2024, 10:11

Gareth Southgate hættur með enska landsliðið (Staðfest)

Gareth Southgate landsliðsþjálfari Englands sendi frá sér yfirlýsingu rétt í þessu þess efnis að hann hafi tekið ákvörðun um að hætta með landsliðið. Hann er 53 ára gamall og núverandi samningur hans átti að renna út seinna á þessu ári.

FRÉTTIR16.07.2024, 10:05

Aziz hættur hjá HK (Staðfest)

HK tilkynnti í dag að félagið hafi komist að samkomulagi um að rifta samningi við miðjumanninn Marciano Aziz sem leitar nú á önnur mið. Ekki kemur fram hvert hann er að fara.

FRÉTTIR15.07.2024, 18:17

Sverrir Ingi til Panathinaikos (Staðfest)

Íslenski landsliðsmaðurinn Sverrir Ingi Ingason er genginn til liðs við gríska félagið Panathinaikos frá Midtyjlland í Danmörku. Félögin staðfestu skiptin í kvöld.

FRÉTTIR15.07.2024, 10:30

Man Utd selur Kambwala til Spánar (Staðfest)

Varnarmaðurinn efnilegi Willy Kambwala er genginn í raðir spænska félagsins. Hann er keyptur frá Manchester United og kvaddi félagið hann í dag með færslum á samfélagsmiðlum.

FRÉTTIR15.07.2024, 10:14

Amanda Andradóttir til hollensku meistraranna (Staðfest)

Amanda Andradóttir er gengin í raðir hollensku meistaranna í Twente. Bæði Valur og Twente greina frá þessu í morgun. Amanda, sem er með íslenska kvennalandsliðinu sem stendur, skrifar undir tveggja ára samning í Hollandi.

FRÉTTIR15.07.2024, 09:30

Davíð yfirgefur Kolding (Staðfest)

Davíð Ingvarsson hefur yfirgefið danska félagið Kolding eftir stutta dvöl hjá félaginu. Kolding staðfestir þetta á Fésbókarsíðu sinni en Fótbolti.net sagði frá því fyrst á dögunum að Davíð væri á förum frá félaginu.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.