FRÉTTIR01.08.2024, 12:52
KR tilkynnti rétt í þessu að Óskar Hrafn Þorvaldsson muni taka við sem þjálfari liðsins eftir tímabilið. Hann kemur hinsvegar strax inn í þjálfareymi liðsins og verður Pálma Rafni Pálmasyni til aðstoðar út yfirstandandi tímabil.
Auk þess að þjálfa meistaraflokk karla hjá KR mun Óskar verða yfirmaður fótboltamála.
Pálmi mun svo taka við sem framkvæmdastjóri félagsins eftir að yfirstandandi keppnistímabili lýkur.
KR hefur gengið afleitlega á tímabilinu og er í níunda sæti Bestu deildarinnar, aðeins þremur stigum frá fallsæti.
FRÉTTIR01.08.2024, 10:36
Breiðablik tilkynnti í morgun að Alfreð Finnbogason væri orðinn starfsmaður félagsins; væri kominn í starf sem tæknilegur ráðgjafi knattspyrnudeildar hjá félaginu.
<i>„Alfreð mun bera ábyrgð á knattspyrnulegum málefnum Breiðabliks, móta stefnu um hugmyndafræði félagsins á víðum grunni og bera ábyrgð á faglegu starfi deildarinnar ásamt starfsfólki knattspyrnudeildar,"</I> segir m.a. í tilkynningu félagsins.
Alfreð er núverandi atvinnu- og landsliðsmaður. Hann á eitt ár eftir af samningi sínum við belgíska félagið Eupen og segir að hann muni sinna starfi sínu hjá Breiðabliki samhliða því að spila sem atvinnumaður í Evrópu.
Framherjinn þekkir vel til hjá Breiðabliki því hann var hjá félaginu á árunum 2005-2010 og varð bæði Íslands- og bikarmeistari með liðinu.
FRÉTTIR01.08.2024, 10:30
Nottingham Forest hefur fest kaup á portúgalska kantmanninum Jota Silva frá Vitoria Guimaraes.
Talið er að kaupverðið sé í kringum 10,1 milljónir punda.
FRÉTTIR01.08.2024, 10:28
AC Milan hefur fengið serbneska varnarmanninn Strahinja Pavlovic frá RB Salzburg. Hann skrifaði undir samning til 2028, með möguleika á einu ári til viðbótar.
Þessi 23 ára miðvörður vakti athygli njósnara AC Milan með öflugu tímabili í austurrísku deildinni.
FRÉTTIR01.08.2024, 09:58
Borussia Dortmund hefur gengið frá kaupum á hinum fjölhæfa Pascal Gross frá Brighton á Englandi.
Talið er að kaupverðið sé í kringum 10 milljónir punda.
FRÉTTIR01.08.2024, 06:00
<p>Markvörðurinn Marvin Darri Steinarsson hefur verið sendur á lán til ÍA frá Vestra.</p>
FRÉTTIR31.07.2024, 20:33
<p>Steve McClaren hefur verið ráðinn þjálfari landsliðs Jamaíku og tekur hann því við starfinu af Heimi Hallgrímssyni. Hann gerir tveggja ára samning.</p>
FRÉTTIR31.07.2024, 18:32
Víkingur Ólafsvík hefur samið við Abdelhadi Khalok um að klára tímabilið með félaginu.
Ólsarar þekkja Khalok vel en þessi 27 ára kantmaður spilaði með liðinu í fyrra og skoraði samtals 9 mörk í 18 leikjum í öllum keppnum.
Fyrri hluta tímabilsins í ár lék hann með KFA en skiptir nú yfir og klárar tímabilið með Víkingum.
<i>„Við bjóðum Khalok velkominn aftur til Ólafsvíkur,"</i> segir í tilkynningu frá Víkingi Ólafsvík en í gær tilkynnti félagið um endurkomu spænska miðjumannsins Simon Colina.
FRÉTTIR31.07.2024, 16:30
Sóknarmaðurinn Pape Mamadou Faye hefur fengið félagaskipti frá Árbæ yfir í Elliða.
FRÉTTIR31.07.2024, 12:11
Enski framherjinn Charlie Austin er mættur aftur í ensku utandeildina eftir fimmtán ára fjarveru. Hann hefur samið við AFC Totton en síðast var hann í utandeildinni tímabilið 2008-2009 þegar hann raðaði inn mörkum fyrir Poole Town og var í kjölfarið keyptur til Swindon.
Þaðan lá leiðin Burnley, svo QPR, Southampton og loks WBA áður en hann hélt aftur til QPR. Hann var síðustu tvö tímabil hjá Swindon í D-deildinni en er mættur aftur í utandeildina - mun spila í Southern League: Premier South.
Austin er 35 ára framherji sem skoraði átján mörk í úrvalsdeildinni tímabilið 2014-15 með QPR en þau dugðu þó ekki til að halda liðinu uppi.
FRÉTTIR31.07.2024, 10:24
Hollenski sóknarmaðurinn Djenairo Daniels er kominn með leikheimild með Fram og er því löglegur fyrir leik liðsins gegn Fylki í Bestu deildinni sem fram fer í kvöld.
Daniels er 22 ára sóknarmaður sem getur leyst það að spila á báðum köntunum og fremst á vellinum. Hann er frekar hávaxinn eða 190 sm á hæð
FRÉTTIR31.07.2024, 06:00
Argentínski miðjumaðurinn Matias Soule var í gær kynntur sem nýr leikmaður Roma á Ítalíu, en hann kemur frá Juventus fyrir 30 milljónir evra.
FRÉTTIR31.07.2024, 06:00
Franska félagið Rennes hefur fest kaup á norska landsliðsmanninum Leo Ostigård en hann kemur frá Napoli á Ítalíu.
FRÉTTIR30.07.2024, 22:47
PAOK hefur fengið Englendinginn unga Shola Shoretire á frjálsri sölu en hann var síðast á mála hjá Manchester United.
FRÉTTIR30.07.2024, 22:28
Danski-sænski markvörðurinn Filip Jörgensen er genginn í raðir Chelsea frá Villarreal.
FRÉTTIR30.07.2024, 19:36
Danski markvörðurinn Christoffer Petersen hefur skrifað undir samning við HK sem gildir út tímabilið en þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu í dag.
FRÉTTIR30.07.2024, 18:49
Spænski unglingalandsliðsmaðurinn Dean Huijsen er kominn til Bournemouth frá Juventus. Enska úrvalsdeildarfélagið staðfesti kaupin í kvöld.
FRÉTTIR30.07.2024, 18:08
Írski miðvörðurinn Jake O'Brien er kominn til Everton frá franska félaginu Lyon. Kaupverðið er 17 milljónir punda.
FRÉTTIR30.07.2024, 17:30
Bjarki Flóvent Ásgeirsson skrifaði undir samning nú á dögunum við Sindra og spilar með liðinu út þetta tímabil.
Bjarki Flóvent kom fyrst til Sindra árið 2021 en færði sig yfir í Knattspyrnufélag Garðabæjar fyrir tímabilið 2024.
Hann spilaði fimm leiki með KFG í 2. deild í sumar, en hann lék einnig með liðinu í Fótbolti.net bikarnum og í Mjólkurbikarnum.
FRÉTTIR30.07.2024, 15:41
Víkingur Ólafsvík hefur samið við spænska miðjumanninn Simon Colina um að spila með liðinu út tímabilið.