Van Bronckhorst tekur við Besiktas (Staðfest)
<p>Hollendingurinn Giovanni Van Bronckhorst er tekinn við sem stjóri tyrkneska félagsins Besiktast.</p>
Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.
Niðurstöður
Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögnum skilaði 24421 niðurstöðum.
Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.
<p>Hollendingurinn Giovanni Van Bronckhorst er tekinn við sem stjóri tyrkneska félagsins Besiktast.</p>
Lille hefur ráðið nýjan þjálfara því Bruno Genesio er tekinn við liðinu. Paulo Fonseca hefur yfirgefið félagið og er öllum líkindum að taka við AC Milan. Fonseca var í tvö ár hjá félaginum og stýrði liðinu í 4. sæti frönsku deildarinnar á nýliðnu tímabili. Það sæti gefur Lille sæti í umspilinu fyrir sæti í Meistaradeildinni á komandi tímabili.
Grótta tilkynnti í dag að þeir Arnar Þór Helgason og Kristófer Melsted væru búnir að framlengja samninga sína við félagið til tveggja ára. Arnar lék ekkert með Gróttu í vetur en hefur komið við sögu í þremur leikjum það sem af er tímabilsins. Hann er 27 ára varnarmaður og hefur verið fyrirliði Gróttu undanfarin ár. Arnar Þór á að baki 149 leiki fyrir Gróttu og hefur skorað í þeim 19 mörk, en hann lék sinn fyrsta leik fyrir meistaraflokk félagsins árið 2016.
Arnar Þór Viðarsson, fyrrum landsliðsþjálfari Íslands, er tekinn við starfi sem íþróttastjóri belgíska félagsins Gent. Frá þessu greindi félagið í morgun. Arnar hefur verið þjálfari unglingaliðs Gent en fer nú í annað starf hjá félaginu. Félagið tilkynnti að Wouter Vrancken væri tekinn við sem þjálfari Gent en hann er fyrrum þjálfari Genk. Vrancken tekur við af Hein Vanhaezebrouck sem var við stjórnvölinn þegar Gent lagði Breiðablik í Sambandsdeildinni í vetur. Vanhaezebrouck var í fjögur ár hjá Gent.
Þeir Anthony Martial og Brandon Williams verða ekki lengur leikmenn Manchester United þegar nýr mánuður hefst. Þetta staðfesti enska félagið í dag. Auk þess verður Raphael Varane ekki áfram hjá félaginu, en frá því hafði verið greint opinberlega í síðasta mánuði. Martial hafði sjálfur greint frá því að hann yrði ekki áfram hjá félaginu en það hafði sjálft ekki staðfest tíðindin fyrr en nú.
Tottenham tilkynnti í dag að fjórir leikmenn væru að renna út á samningi og yrðu ekki áfram hjá félaginu. Það eru þeir Japhet Tanganga, Ryan Sessegnon, Eric Dier og Ivan Perisic. Dier var á láni hjá Bayern Munchen seinni hluta tímabilsins. Hann var hjá Tottenham í níu og hálft ár. Bayern gaf það út í vetur að Dier myndi leika áfram með liðinu á næsta tímabili.
Aurelio De Laurentiis, forseti Napoli, tilkynnti á <i>X</I> í morgun að Antonio Conte væri búinn að skrifa undir þriggja ára samning við félagið. Í kjölfarið tilkynnti svo félagið sjálft um komu Conte. Conte tekur við stjórnartaumunum og fær 6 milljónir evra í árslaun. Það gerir hann að launahæsta stjóra í sögu Napoli.
Bournemouth hefur gengið frá kaupum á markverðinum Alex Paulsen frá Wellington Phoenix. Þetta kemur fram í tilkynningu frá enska úrvalsdeildarfélaginu.
Haraldur Árni Hróðmarsson hefur verið ráðinn nýr þjálfari Grindavíkur og mun stýra félaginu út leiktíðina í Lengjudeild karla. Frá þessu greinir félagið á samfélagsmiðlum rétt í þessu. Halli tekur við af Brynjari Birni Gunnarssyni sem var látinn fara eftir leikinn gegn Keflavík á föstudag. Marko Valdimar Jankovic mun starfa með Haraldi Árna sem aðstoðarþjálfari. Marko er sonur Milan Stefáns Jankovic.
Cardiff hefur loksins náð lendingu í stjóramálum sínum því tilkynnt var í dag að Tyrkinn Erol Bulut hefði skrifað undir tveggja ára framlengingu á samningi sínum. Bulut sagði við fjölmiðla fyrir um mánuði síðan að það væru viðræður í gangi, en svo heyrðist ekkert.
Sergio Conceicao sem hefur stýrt Porto undanfarin sjö tímabil hefur yfirgefið félagið. Frá þessu var greint í samfélagsmiðlum í dag. Á tíma sínum hjá Porto vann Conceicao ellefu titla.
Spænski markvörðurinn Pepe Reina er farinn frá Villarreal eftir tveggja ára dvöl hjá félaginu.
Fabio Grosso er nýr þjálfari Sassuolo á Ítalíu en hann fær það hlutverk að stýra liðinu aftur upp í Seríu A.
Spænska félagið Real Madrid hefur loksins tilkynnt komu franska sóknarmannsins Kylian Mbappe til félagsins, en hann kemur á frjálsri sölu frá Paris Saint-Germain. Samningur hans er til fimm ára og mun hann þéna um 15 milljónir evra í árslaun.
Chelsea hefur staðfest ráðningu á Ítalanum Enzo Maresca. Hann tekur við liðinu af Mauricio Pochettino og skrifar undir samning sem gildir til ársins 2030. <i>„Að taka við Chelsea, einu stærsta félagi heims, er draumur fyrir alla þjálfara,"</I> segir Maresca.
Vincenzo Italiano hefur stýrt sínum síðasta leik hjá Fiorentina, en þetta kemur fram í tilkynningu félagsins.
Bjarki Steinn BJarkason og Mikael Egill Ellertsson, leikmenn Venezia, eru komnir upp í Seríu A eftir að lið þeirra vann 1-0 sigur á Cremonese í úrslitum í umspili B-deildarinnar.
<p>Jose Mourinho er tekinn við tyrkneska liðinu Fenerbahce.</p>
<p>Brynjar Björn Gunnarsson hefur verið rekinn úr starfi sem þjálfari Grindavíkur sem leikur í Lengjudeildinni.</p>
Þýski miðvörðurinn Jerome Boateng er genginn í raðir austurríska félagsins LASK Linz frá Salernitana á Ítalíu.