Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25143 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR01.07.2024, 15:37

Daníel Freyr til Fredericia (Staðfest)

Daníel Freyr Kristjánsson er genginn í raðir danska félagsins FC Fredericia á láni frá Midtjylland út komandi tímabil. Hann fetar með því í fótspor Elíasar Rafns Ólafssonar sem tók þetta sama skref fyrir nokkrum árum síðan. Daníel er 18 ára vinstri bakvörður sem sagði í viðtali við Fótbolta.net í síðasta mánuði að líklegasta lendingin væri sú að hann myndi spila með Fredericia tímabilið 2024/25.

FRÉTTIR01.07.2024, 13:30

Aston Villa fær Barrenechea og Iling-Junior (Staðfest)

Aston Villa hefur fengið Enzo Barrenechea og Samuel Iling-Junior frá Juventus en þeir eru keyptir á um 19 milljónir punda samtals. Sú upphæð gæti hækkað eftir ákvæðum. Argentínski miðjumaðurinn Barrenechea er 23 ára en hann var á láni hjá Frosinone en hann kostar um 7 milljónir. Framherjinn Iling-Junior er tvítugur og er keyptur á 12 milljónir en hann skoraði tvö mörk í 45 leikum fyrir félagið. Hann hefur spilað fyrir U21 landslið Englands en hann var hluti af akademíu Chelsea áður en hann fór í yngri lið Juventus og vann sig upp í aðalliðið.

FRÉTTIR01.07.2024, 13:00

Glasner og Kamada sameinaðir á ný (Staðfest)

Crystal Palace tilkynnti í morgun að Japaninn Daichi Kamada væri genginn í raðir félagsins en félagaskiptin hafa legið í loftinu að undanförnu. Kamada kemur á frjálsri sölu frá Lazio. Kamada gerir tveggja ára samning en í tilkynningu Palace kemur fram að Kamada þurfi að fá atvinnuleyfi svo hann geti fengið leikheimild. Kamada er 27 ára sóknarsinnaður miðjumaður sem þekkir vel til Olveri Glasner en hann vann með stjóra Crystal Palace hjá Eintracht Frankfurt. Þeir urðu Evrópudeildarmeistarar vorið 2022 og skoraði Kamada úr víti í vítaspyrnukeppninni í úrslitaleiknum.

FRÉTTIR01.07.2024, 11:30

Newcastle fær 65 milljónir punda fyrir tvo leikmenn (Staðfest)

Brighton hefur gengið frá kaupum á Yankuba Minteh frá Newcastle. Brighton kaupir gambíska vængmanninn, félagið greiðir um 30 milljónir punda fyrir kappann. Newcastle keypti Minteh síðasta sumar á um sjö miljónir evra frá danska félaginu OB. Hann var strax lánaður til Feyenoord og spilaði því aldrei leik með Newcastle. Minteh, sem verður tvítugur í næsta mánuði, skoraði tíu mörk í hollensku deildinni í vetur. Hann skrifar undir fimm ára samning við Brighton.

FRÉTTIR01.07.2024, 11:08

Farinn til Ipswich eftir 17 ár hjá West Ham (Staðfest)

Ben Johnson er genginn í raðir nýliða Ipswich Town í ensku úrvalsdeildinni. Johnson kemur til félagsins á frjálsri sölu frá West Ham þar sem samningur hans var runninn út. Johnson er fjölhæfur varnarmaður sem einnig getur spilað sem varnarsinnaður miðjumaður. Hann skrifar undir fjögurra ára samning á Portman Road.

FRÉTTIR01.07.2024, 10:36

Lewis Hall og tveir markverðir til Newcastle (Staðfest)

Newcastle hefur formlega gengið frá kaupum á Lewis Hall frá Chelsea. Newcastle greiðir 28 milljónir punda fyrir Englendinginn sem var á láni hjá Newcastle á síðasta tímabili. Strax varð ljóst að Newcastle myndi kaupa kappann en nú eru félagaskiptin formlega gengin í gegn. Hall er vinstri bakvörður sem einnig getur spilað á miðjunni, hann verður tvítugur í september. Hann er U21 landsliðsmaður og kom við sögu í 22 leikjum með Newcastle á tímabilinu.

FRÉTTIR01.07.2024, 07:57

Heimir sagði upp hjá jamaíska landsliðinu (Staðfest)

Heimir Hallgrímsson er hættur sem landsliðsþjálfari Jamaíku en þetta kemur fram í tilkynningu frá fótboltasambandi þjóðarinnar. Þessi tilkynning kemur ekki á óvart því fjölmiðlar í Jamaíku höfðu greint frá því í gær að leiðir væru að skilja. Heimir ku hafa sagt upp áður en Jamaíka tapaði 3-0 fyrir Venesúela í lokaumferð riðlakeppni Copa America. Fyrir leikinn var ljóst að Jamaíka ætti ekki möguleika á að komast áfram og hafnaði liðið stigalaust á botninum.

FRÉTTIR29.06.2024, 13:00

María Catharina yfirgefur Sittard (Staðfest) - Stefnir heim, en þó ekki til Íslands

María Catharina Gros Ólsfdóttir er án félags sem stendur þar sem hún hafnaði nýjum samningi frá hollenska félaginu Fortuna Sittard. Þetta staðfesti hún í samtali við Fótbolta.net. María fór til Hollands fyrir einu og hálfu ári síðan, frá uppeldisfélaginu Þór/KA. Kantmaðurinn lagði upp eitt mark á sínu fyrsta hálfa ári en í vetur skoraði hún níu mörk og lagði upp tvö í 25 leikjum.

FRÉTTIR28.06.2024, 20:32

Ian Maatsen til Aston Villa (Staðfest)

Aston Villa hefur gengið frá kaupum á hollenska vinstri bakverðinum Ian Maatsen fyrir um 37,5 milljónir punda en hann kemur til félagsins frá Chelsea.

FRÉTTIR28.06.2024, 18:03

Joselu til Al-Gharafa (Staðfest)

Spænski sóknarmaðurinn Joselu er genginn til liðs við Al-Gharafa í Katar en hann kemur til félagsins frá Evrópumeisturum Real Madrid.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.