Fotbolti.net
01.07.24 - 13:30
Elvar Geir Magnússon

Aston Villa fær Barrenechea og Iling-Junior (Staðfest)

Enzo Barrenechea.

Enzo Barrenechea.

Canon

Mynd: Aston Villa

Aston Villa hefur fengið Enzo Barrenechea og Samuel Iling-Junior frá Juventus en þeir eru keyptir á um 19 milljónir punda samtals. Sú upphæð gæti hækkað eftir ákvæðum.

Argentínski miðjumaðurinn Barrenechea er 23 ára en hann var á láni hjá Frosinone en hann kostar um 7 milljónir.

Framherjinn Iling-Junior er tvítugur og er keyptur á 12 milljónir en hann skoraði tvö mörk í 45 leikum fyrir félagið. Hann hefur spilað fyrir U21 landslið Englands en hann var hluti af akademíu Chelsea áður en hann fór í yngri lið Juventus og vann sig upp í aðalliðið.
Douglas Luiz til Juventus (Staðfest)
TENGT EFNI

Douglas Luiz til Juventus (Staðfest)

Þessi viðskipti koma í kjölfarið á því að Juventus keypti miðjumanninn Douglas Luiz frá Villa.

Á föstudag fékk Villa vinstri bakvörðinn Ian Maatsen frá Chelsea og þá hefur liðið einnig fengið sóknarmanninn Lewis Dobbin frá Everton.
Iling-Junior.

Iling-Junior.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.