Fotbolti.net
01.07.24 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson

Birmingham fær markvörð frá Burnley (Staðfest)

Birmingham fær markvörð frá Burnley (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Markvörðurinn Bailey Peacock-Farrell er genginn til liðs við Birmingham frá Burnley en þetta staðfesti Birmingham á heimasíðu sinni í gær.
Peacock-Farrell er 27 ára gamall Englendingur sem var á mála hjá Burnley í fimm ár.

Hann lék 24 leiki fyrir liðið á þessum fimm árum en síðasta árið var hann á láni hjá AGF í Danmörku.

Markvörðurinn er nú mættur til Birmingham en kauverðið kemur ekki fram.

Samningur hans gildir til næstu fjögurra ára.

Birmingham féll úr ensku B-deildinni á síðustu leiktið og mun því spila í C-deildinni á komandi tímabili.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.