Brasilíski miðjumaðurinn Douglas Luiz er genginn til liðs við Juventus frá Aston VIlla.
Villa mun fá vængmanninn Samuel Iling Junior og miðjumanninn Enzo Barraneechea í staðinn. Þá borgar Juventus einni 21 milljón punda til Villa.
Luiz skoraði níu mörk í 35 leikjum á síðustu leiktíð þegar liðið tryggði sér sæti í Meistaradeildinni á næstu leiktíð með því að enda í 4. sæti í úrvalsdeildinni.
Luiz er 26 ára en hann á 15 landsleiki að baki fyrir hönd Brasilíu. Hann er um þessar mundir með brasilíska landsliðinu á Copa America.
He’s here! #DouglasLuiz ???????? pic.twitter.com/ivKxkKWuMM
— Juventus Area (@juventus_area) June 30, 2024
Athugasemdir