Newcastle hefur formlega gengið frá kaupum á Lewis Hall frá Chelsea. Newcastle greiðir 28 milljónir punda fyrir Englendinginn sem var á láni hjá Newcastle á síðasta tímabili. Strax varð ljóst að Newcastle myndi kaupa kappann en nú eru félagaskiptin formlega gengin í gegn.
Hall er vinstri bakvörður sem einnig getur spilað á miðjunni, hann verður tvítugur í september. Hann er U21 landsliðsmaður og kom við sögu í 22 leikjum með Newcastle á tímabilinu.
Hall er vinstri bakvörður sem einnig getur spilað á miðjunni, hann verður tvítugur í september. Hann er U21 landsliðsmaður og kom við sögu í 22 leikjum með Newcastle á tímabilinu.
Newcastle hefur einnig landað John Ruddy en markvörðurinn kemur á frjálsri sölu frá Birmingham og skrifar undir eins árs samning.
Ruddy er 37 ára enskur markvörður. Hann er annar markvörðurinn sem Newcastle fær í sumar því Odysseas Vlachodimos kom til félagsins í gær frá Nottingham Forest. Ruddy og Vlachodimos munu reyna veita Nick Pope samkeppni um aðalmarkvarðarstöðuna á komandi tímabili.
Athugasemdir