FRÉTTIR08.02.2024, 17:30
Muhamed Alghoul, sem gekk í raðir Keflavíkur síðasta sumar, hefur fengið félagaskipti til Króatíu. Alghoul er 27 ára sóknarsinnaður miðjumaður sem skoraði eitt mark í átta leikjum með Keflavík í fyrra.
Hann er genginn í raðir NK Jarun sem spilar í næst efstu deild í Króatíu. Þar hittir hann fyrir yngri bróður sinn Halid Alghoul.
FRÉTTIR08.02.2024, 15:26
ÍBV hefur ráðið Jón Ólaf Daníelsson til starfa hjá félaginu og mun samningurinn ná til fimm ára.
FRÉTTIR08.02.2024, 14:30
Miðjumennirnir Alexander Helgason og Hubert Kotus hafa báðir skrifað undir samning þess efnis um að leika með Reyni Sandgerði næstu tvö tímabilin.
Samkvæmt heimildum Fótbolta.net er Sindri Þór Guðmundsson einnig á leiðinni í Reyni.
FRÉTTIR08.02.2024, 12:00
Susanna Joy Friedrichs er mætt aftur í Bestu deildina en hún hefur skrifað undir samning við Keflavík fyrir næsta tímabil.
FRÉTTIR08.02.2024, 11:21
Víðir Þorvarðarson hefur fengið leikheimild með ÍBV og ætlar að spila með liðinu í Lengjubikarnum um hlegina.
Víðir lék síðast með ÍBV tímabilið 2020 en samningi hans var rift eftir það tímabil. <i>„Ég fékk aldrei útskýringar. Það var tekin ákvörðun af stjórn ÍBV um að rifta við mig samningi. Síðan þá hef ég ekki talað við þá menn,"</I> sagði Víðir í samtali við Fótbolta.net sumarið 2021.
Hann lék með KFS 2021 og 2022 en lék ekkert 2023.
FRÉTTIR08.02.2024, 10:33
Þróttur í Reykjavík hefur gengið frá samningum við tvo leikmenn sem koma til félagsins frá Selfossi.
Það eru þær Kristrún Rut Antonsdóttir og Íris Una Þórðardóttir. Báðar skrifa þær út samning sem gildir út tímabilið 2025.
FRÉTTIR08.02.2024, 06:00
<p>Fjölnir hefur samið við þrjá nýja leikmenn fyrir átökin í 2. deild kvenna næsta sumar.</p>
FRÉTTIR08.02.2024, 06:00
<p>Díana Ásta Guðmundsdóttir er gengin til liðs við Gróttu en hún gerir tveggja ára samning við félagið.</p>
FRÉTTIR07.02.2024, 20:22
<p>Ásgeir Frank Ásgeirsson hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna en hann hefur verið ráðinn þjálfari Hvíta riddarans sem leikur í 3. deild í sumar.</p>
FRÉTTIR07.02.2024, 18:12
<p>Hinn 38 ára gamli Arnór Sveinn Aðalsteinsson hefur gert nýjan eins árs samning við Breiðablik.</p>
FRÉTTIR07.02.2024, 17:00
Fjarðabyggð/Höttur/Leiknir hefur gengið frá samningi við írska markvörðinn Keelan Terrell og mun hún spila fyrir félagið í Lengjudeild kvenna í sumar.
FRÉTTIR07.02.2024, 15:30
Grindavík hefur fengið Hrannar Inga Magnússon á láni frá frá Íslands- og bikarmeisturum Víkings.
FRÉTTIR07.02.2024, 15:00
Tindastóll hefur landað ansi öflugum bita því Laufey Harpa Halldórsdóttir mun spila með liðinu í sumar.
Laufey er bakvörður sem uppalin er hjá Tindastóli en skipti í Breiðablik fyrir tímabilið 2022. Hún lék með Tindastóli í fyrra á láni og skiptir nú alfarið.
FRÉTTIR07.02.2024, 14:06
Jesse Lingard, fyrrum leikmaður Manchester United, hefur skrifað undir tveggja ára samning við FC Seoul í Suður-Kóreu. Möguleiki er á árs framlengingu á samningnum.
Lingard, sem er 31 árs Englendingur, hefur verið án félags síðan síðasta sumar þegar samningur hans við Nottingham Forest rann út.
FRÉTTIR07.02.2024, 14:00
Dalvík/Reynir tilkynnti í dag um komu Freys Jónssonar til félagsins en hann kemur frá Grindavík.
Freyr er 23 ára leikmaður sem getur bæði spilað í varnarlínunni og á miðjunni. Hann þekkir vel til fyrir norðan því hann lék um árabil með KA í yngri flokkum.
FRÉTTIR07.02.2024, 13:43
Fylkir hefur fengið Hilmar Þór Kjærnested Helgason í sínar raðir frá Breiðabliki. Hann er annar efnilegi markvörðurinn sem yfirgefur Breiðablik á síðustu dögum en í gær fékk nafni hans Hilmar Karlsson félagaskipti í Val.
FRÉTTIR07.02.2024, 12:24
FH kveður Eggert Gunnþór Jónsson á samfélagsmiðlum sínum í dag en hann heldur heim og verður spilandi aðstoðarþjálfari hjá KFA, Knattspyrnufélagi Austfjarða, í 2. deildinni.
<i>„Við þökkum honum innilega fyrir þessi þrjú ár hjá okkur og óskum honum góðs gengis í komandi verkefnum,"</i> segir á miðlum FH.
FRÉTTIR07.02.2024, 06:00
Valur hefur gengið frá þriggja ára samning við unglingalandsliðsmarkvörðinn Hilmar Karlsson en hann kemur frá Breiðabliki.
FRÉTTIR06.02.2024, 17:47
Gísli Eyjólfsson var í dag kynntur sem nýr leikmaður Halmstad. Sænska félagið kaupir hann af Breiðabliki.
Halmstad greinir frá komu Gísla á samfélagsmiðlum en þar kemur ekki fram samningslengd. Ólafur Garðarsson, umboðsmaður Gísla, staðfesti við Fótbolta.net að um þriggja ára samning væri að ræða.
Gísli, sem er 29 ára miðjumaður, skrifar undir ára samning. Hann er annar leikmaðurinn sem Halmstad fær frá Íslandi í vetur því í síðasta mánuði fékk liðið Birni Snæ Ingason, besta leikmann Bestu deildarinnar 2023, í sínar raðir frá Víkingi.
FRÉTTIR06.02.2024, 16:11
Ástralski sóknarmaðurinn Jordan Smylie hefur skrifað undir samning við ástralska félagið Dandenong Thunder SC.
Smylie kom til Keflavíkur í fyrra og lék fyrri hluta tímabilsins með liðinu í Bestu deildinni. Hann náði ekki að heilla og var lánaður til Hauka seinni hlutann.