Kristján Atli í ÍR (Staðfest)
<p>Kristján Atli Marteinsson er genginn til liðs við ÍR en hann gerir tveggja ára samning við félagið. Hann kemur til liðsins frá Þór.</p>
Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.
Niðurstöður
Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögnum skilaði 24436 niðurstöðum.
Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.
<p>Kristján Atli Marteinsson er genginn til liðs við ÍR en hann gerir tveggja ára samning við félagið. Hann kemur til liðsins frá Þór.</p>
<p>Jan Paul van Hecke hefur skrifað undir nýjan samning við Brighton sem gildir til ársins 2027.</p>
Bryndís Arna Níelsdóttir er gengin í raðir Växjö DFF frá Val en sænska félagið tilkynnti þetta í dag.
Kjartan Henry Finnbogason hefur lagt skóna á hilluna eftir farsælan feril en þetta staðfesti hann í hlaðvarpsþætti FH í dag. Hann hefur nú tekið við nýju hlutverki en hann verður aðstoðarmaður Heimis Guðjónssonar á komandi tímabili.
Þórður Ingason hefur ákveðið að leggja markmannshanskana á hilluna eftir langan og farsælan feril. Víkingur tilkynnir þetta á samfélagsmiðlum í dag en greint hafði verið frá því í útvarpsþættinum Fótbolti.net að hann væri hættur.
Þór/KA tilkynnti í kvöld að landsliðskonan Sandra María Jessen verði áfram hjá félaginu. Sandra María hefur nýtt síðustu viku í að íhuga framtíð sína. Hún hafði ákveðið að spila áfram á Íslandi en valið stóð að lokum á milli Þórs/KA eða spila á höfuðborgarsvæðinu. Hún valdi heimahagana á Akureyri. Sandra María samdi við félagið til tveggja ára en á sama tíma var tilkynnt um framlengingu samninga við Agnesi Birtu Stefánsdóttur, Angelu Mary Helgadóttur og Iðunni Rán Gunnarsdóttur.
Hamar í Hveragerði er búið að tryggja sér áframhaldandi þjónustu Argentínumannanna Guido Rancez og Roli Depedris á næstu leiktíð.
Viðar Örn Kjartansson staðfesti í samtali við <i>Fótbolta.net</i> að hann sé búinn að rifta samningi sínum við CSKA 1948 Sofia í efstu deild í Búlgaríu eftir tæplega fjögurra mánaða dvöl þar.
Það er mikill gleðidagur fyrir Þróttara í dag vegna þess að Norðmaðurinn Jörgen Pettersen er búinn að framlengja samning sinn við félagið út næsta keppnistímabil. Þá eru Þróttarar einnig búnir að krækja sér í varnarmanninn öfluga Samúel Má Kristinsson.
Marín Rún Guðmundsdóttir er mætt aftur til Keflavíkur og mun leika með liðinu í Bestu deild á komandi tímabili.
Breiðablik er búið að gera samning við bráðefnilega unglingalandsliðskonu sem kemur til félagsins úr herbúðum Sindra frá Höfn í Hornafirði.
Valur var að tilkynna stórfréttir í kvennaboltanum þar sem Íslandsmeistarar síðustu þriggja ára voru að tryggja sér þjónustu Katie Cousins.
Þróttur Vogum, sem var nálægt því að koma sér upp í Lengjudeildina í haust, er búinn að krækja í Jökul Blængsson.
Sandra Voitane er aftur gengin í raðir ÍBV eftir að hafa spilað eitt sumar með Keflavík. Hún skrifar undir samning við ÍBV sem gildir út næsta sumar.
Bandaríska félagið Charlotte FC hefur staðfest ráðninguna á enska þjálfaranum Dean Smith, en hann gerir tveggja ára samning við félagið.
Emelía Óskarsdóttir er gengin í raðir danska félagsins HB Köge. Félagið greindu frá þessu í dag. Emelía kemur frá Kristianstad í Svíþjóð þar sem hún var í tvö ár en fékk sig lausa þaðan í lok tímabilsins. Hún er uppalin í Gróttu en hefur einnig verið á mála hjá Ballerup-Skovlunde í Danmörku á sínum ferli.
Sádí-Arabíska knattspyrnusambandið er búið að staðfesta Spánverjann Lluís Cortés sem nýjan landsliðsþjálfara kvennaliðsins þar í landi.
Bakvörðurinn Hafrún Rakel Halldórsdóttir hefur gengið í raðir danska félagsins Bröndby. Frá því var greint hér á Fótbolta.net á dögunum að Hafrún Rakel væri að ganga í raðir Bröndby og núna hefur það verið staðfest. Hún skrifar undir tveggja ára samning við félagið.
KR tilkynnti í dag að félagið hafi fengið unglingalandsliðsmanninn Hrafn Guðmundsson frá Aftureldingu. Hrafn var samningsbundinn Mosfellingunum út tímabilið 2025 svo líklega hefur hann verið keyptur. Hrafn er fyrsti leikmaðurinn sem kemur til KR síðan Gregg Ryder tók við þjálfun liðsins í haust. Í tilkynningu KR er rætt við Gregg sem segir:
Breiðablik tilkynnti í dag að bakvörðurinn Kristinn Jónsson sé genginn í raðir félagsins frá KR. Þetta kemur fram í myndbandi frá félaginu sem var birt á samfélagsmiðlum í dag en þar er ferðast um Kópavoginn á þessum góðviðrisdegi og endað á Kópavogsvelli þar sem Kristinn er kominn í búning Breiðabliks.