Fotbolti.net
13.12.23 - 21:35
Ívan Guðjón Baldursson

Jökull Blængs semur við Þrótt V. (Staðfest)

Jökull Blængs semur við Þrótt V. (Staðfest)
Canon

Mynd: Þróttur Vogum

Þróttur Vogum, sem var nálægt því að koma sér upp í Lengjudeildina í haust, er búinn að krækja í Jökul Blængsson.
Jökull er 26 ára gamall markvörður sem lék síðast fyrir Elliða hér á landi, en hann hefur verið upptekinn í bandaríska háskólaboltanum að undanförnu. Þar hefur hann verið lykilmaður í liði Georgia Southern University og var valinn á lista yfir 100 bestu nýliðana í háskólaboltanum á sínu fyrsta ári.

Jökull á þrjá leiki að baki í efstu deild karla með Fjölni og tólf leiki í næstefstu deild með Haukum.

Hann þótti mikið efni á sínum uppeldisárum og spilaði tvo leiki fyrir U21 landslið Íslands, eftir að hafa leikið þrjá leiki fyrir U16 liðið.

„Þetta er spennandi og skemmtilegt verkefni sem er í gangi í Vogum. Félagið hefur náð eftirtektarverðum árangri síðustu árin. Ég þekki nokkra sem hafa spilað fyrir klúbbinn og það tala allir vel um Vogana sem hafa verið hérna. Gunnar þjálfari Þróttar seldi mér hugmyndina strax og ég hef fulla trú á því að liðið geti farið alla leið næsta sumar," sagði Jökull meðal annars við undirskrift á samningi.
Jökull Blængs semur við Þrótt V. (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.