Kristján Atli í ÍR (Staðfest)


Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson


Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Kristján Atli Marteinsson er genginn til liðs við ÍR en hann gerir tveggja ára samning við félagið. Hann kemur til liðsins frá Þór.
Kristján Atli gekk til liðs við Þór fyrir síðasta tímabil og lék 17 leiki í Lengjudeildinni og mun nú taka slaginn með ÍR í sömu deild eftir að liðið tryggði sér þátttökurétt með því að hafna í 2. sæti í 2. deild síðasta sumar.
Kristján er 27 ára og er uppalinn í HK en hefur komið víða við. Hann lék með Aftureldingu í þrjú ár áður en förinni var heitið í Kórdrengi þar sem hann lék í eitt ár áður en hann hélt norður til Akureyrar.
Hann er annar leikmaðurinn sem ÍR nælir í fyrir tímabilið en Marc McAusland gekk til liðs við félagið frá Njarðvík.
Komnir
Marc McAusland frá Njarðvík
Farnir
Ásgeir Börkur Ásgeirsson hættur
Ólafur Örn Ásgeirsson í HK (var á láni)
Ívan Óli Santos í Gróttu (var á láni)
Ernest Slupski í Þrótt R. (var á láni)
Dagur Þór Hafþórsson í FH (var á láni)






