Marín Rún aftur til Keflavíkur (Staðfest)

Marín Rún í leik með Keflavík.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Marín Rún í leik með Keflavík.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Marín Rún Guðmundsdóttir er mætt aftur til Keflavíkur og mun leika með liðinu í Bestu deild á komandi tímabili.
Marín er sóknarleikmaður sem hefur leikið með Grindavík og Njarðvík undanfarin ár en hún er uppalinn Keflvíkingur sem á að baki 127 deildarleiki þar sem hún hefur skorað 28 mörk.
Hún fór erlendis 2021 og spilaði í Slóvakíu meðfram námi. Þá var hún á mála hjá ítalska félaginu Hellas Verona fyrri hluta ársins 2022 en fékk ekki leikheimild þar út af klúðri hjá félaginu.
„Hún hefur æft með Keflavík á undirbúningstímabilinu og mun koma með gæði og reynslu inn í liðið að sögn Jonathan Glenn þjálfara," segir í tilkynningu Keflavíkur.
Keflavík hafnaði í áttunda sæti Bestu deildarinnar í sumar og rétt slapp við fall.