Fotbolti.net
11.12.23 - 23:30
Ívan Guðjón Baldursson

Cortés tekinn við Sádí-Arabíu (Staðfest) - Tekur ekki við Chelsea

Cortés tekinn við Sádí-Arabíu (Staðfest) - Tekur ekki við Chelsea
Canon

Mynd: EPA

Hertz
Sádí-Arabíska knattspyrnusambandið er búið að staðfesta Spánverjann Lluís Cortés sem nýjan landsliðsþjálfara kvennaliðsins þar í landi.
Cortes er 37 ára gamall og gerði garðinn frægan við stjórnvölinn hjá kvennaliði FC Barcelona frá 2019 til 2021, en þar áður var hann aðstoðarþjálfari liðsins í tvö ár.

Undanfarin ár hefur Cortes þjálfað kvennalandslið Úkraínu en nú reynir hann fyrir sér með Sádí-Arabíu.

Þetta þýðir að Cortes mun ekki taka við kvennaliði Chelsea eftir að Emma Hayes fer yfir til Bandaríkjanna. The Athletic orðaði hann við stöðuna á dögunum.

Þetta verður áhugavert verkefni fyrir Cortés, þar sem kvennafótbolti er nýr af nálinni í Sádí-Arabíu, þar sem réttindi kvenna eru öðruvísi heldur en við þekkjum í vestræna menningarheiminum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.