Fotbolti.net
15.12.23 - 13:35
Elvar Geir Magnússon

Þórður Ingason leggur hanskana á hilluna (Staðfest)

Þórður með Íslandsmeistaraskjöldinn.

Þórður með Íslandsmeistaraskjöldinn.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þórður Ingason hef­ur ákveðið að leggja mark­manns­hansk­ana á hill­una eft­ir lang­an og far­sæl­an feril. Víkingur tilkynnir þetta á samfélagsmiðlum í dag en greint hafði verið frá því í útvarpsþættinum Fótbolti.net að hann væri hættur.
„Þórður Ingason kveður sviðið sem tvöfaldur Íslandsmeistari & fjórfaldur Bikarmeistarari! Takk fyrir okkur Doddi," segir í tilkynningu Víkings.

Þórður er 35 ára og var varamarkvörður Víkings. Hann lék þrjá leiki í Bestu deildinni síðasta tímabil og fimm bikarleiki. 2021 lék hann flesta leiki Víkings á tímabilinu vegna meiðslu Ingvars Jónssonar.

Hann gekk til liðs við Víking frá uppeldisfélagi sínu Fjölni árið 2019 en hann lék einnig fyrir KR, BÍ/Bolungarvík og yngri landslið Íslands á sínum ferli.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.