Fotbolti.net
13.12.23 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson

Dean Smith tekur við Charlotte (Staðfest)

Dean Smith tekur við Charlotte (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Bandaríska félagið Charlotte FC hefur staðfest ráðninguna á enska þjálfaranum Dean Smith, en hann gerir tveggja ára samning við félagið.
Smith stýrði síðast Leicester í ensku úrvalsdeildinni en hann tók við af Brendan Rodgers í apríl og fékk það erfiða verkefni að bjarga liðinu frá falli, en það tókst ekki og yfirgaf hann félagið eftir tímabilið.

Áður stýrði hann Aston Villa og kom meðal annars liðinu upp í úrvalsdeildina árið 2019.

Hann var við stjórnvölinn alveg fram í nóvember 2021 áður en hann var látinn taka poka sinn þar. Smith hefur einnig stýrt Walsall, Brentford og Norwich City á þjálfaraferli sínum.

Smith og Frank Lampard komu til greina í starfið hjá Charlotte FC, en Smith hafði þar betur og var ráðinn til næstu tveggja ára.

„Það er alger heiður að vera ráðinn sem næsti þjálfari Charlotte FC og get ég ekki beðið eftir að hefja undirbúning á nýju tímabili. Frá því viðtalsferlið hófst var mér ljóst hversu metnaðarfullt það er og tel ég það hafa réttu hráefnin til þess að ná árangri. Ég er hæstánægður með að hefja nýjan kafla hjá Charlotte og er þetta einstakt tækifæri til að vera hluti af verkefni sem hefur alla burði til þess að að ná nýjum hæðum í MLS-deildinni,“ sagði Smith við
undirskrift.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.