Bryndís Arna semur við Växjö (Staðfest)

Bryndís Arna mun spila í sænsku úrvalsdeildinni á næsta tímabili

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Bryndís Arna Níelsdóttir er gengin í raðir Växjö DFF frá Val en sænska félagið tilkynnti þetta í dag.
Bryndís Arna, sem er tvítug, átti stórkostlegt tímabil með Val í sumar þar sem hún endaði markahæst í Bestu deildinni með 15 mörk ásamt því að leggja upp fjölda marka.
Hún hóf feril sinn hjá Fylki en skipti yfir í Val á síðasta ári. Alls á hún 77 leiki og 37 mörk í efstu deild með félögunum ásamt því að eiga 3 A-landsleiki.
„Það er frábær tilfinning að hafa skrifað undir fyrir Växjö DFF. Ég tel mig geta þróað minn leik og gert góða hluti hjá þessu metnaðarfulla félagi. Ég er klár í að taka næsta skrefið á ferlinum,“
„Ég elska Svíþjóð og hef lengi viljað spila hér. Ég átti gott samtal með þjálfurunum og fékk líka tækifærið til að heimsækja félagið, skoða aðstæður og bæinn áður en ég tók ákvörðun. Ég á líka fjölskyldu og vini sem eru í nágrenninu og gerir það mér kleift að heimsækja þau, sem var auðvitað smá plús,“ sagði Bryndís á heimasíðu félagsins.
Växjö spilar áfram í sænsku úrvalsdeildinni á næsta tímabili en það hafnaði í 8. sæti á nýafstöðnu tímabili.
Bryndís verður önnur íslenska fótboltakonan til að spila fyrir félagið en Andrea Mist Pálsdóttir lék með liðinu frá 2021 til 2022.