Fotbolti.net
15.12.23 - 14:50
Brynjar Ingi Erluson

Kjartan Henry leggur skóna á hilluna (Staðfest)

Kjartan Henry er hættur í fótbolta

Kjartan Henry er hættur í fótbolta

Canon

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Kjartan Henry Finnbogason hefur lagt skóna á hilluna eftir farsælan feril en þetta staðfesti hann í hlaðvarpsþætti FH í dag. Hann hefur nú tekið við nýju hlutverki en hann verður aðstoðarmaður Heimis Guðjónssonar á komandi tímabili.
FH staðfestir ráðningu á Kjartani Henry - Skórnir á hilluna?
TENGT EFNI

FH staðfestir ráðningu á Kjartani Henry - Skórnir á hilluna?

Kjartan er uppalinn í KR en hann og Theodór Elmar Bjarnason sömdu við skoska stórveldið Celtic í lok árs 2004.

Hann eyddi rúmum fimm árum í atvinnumennsku þar sem hann spilaði fyrir Queen's Park, Åtvidabergs FF, Sandefjord og Falkirk áður en hann snéri aftur heim í KR 2010.

Þar varð hann Íslandsmeistari 2011 og 2013, auk þess að vinna bikarinn þrisvar sinnum 2010, 2011 og 2014. Hann hélt aftur út fyrir landsteinanna árið 2014 og samdi við Horsens í Danmörku. Þar raðaði hann inn mörkum þau fjögur ár sem hann var þar. Kjartan fór til Ungverjalands og spilaði eitt tímabil þar sem hann endaði meðal annars markahæstur í ungverska bikarnum með 6 mörk.

Árið á eftir fór hann aftur til Danmerkur og gekk í raðir Vejle. Kjartan fór með liðinu upp í efstu deild á fyrsta tímabili og endaði markahæstur í deildinni með 17 mörk.

Kjartan spilaði með Horsens og Esbjerg áður en hann snéri heim í KR fyrir tveimur árum. Það ævintýri fór ekki eins og hann hefði viljað. Hann skoraði vissulega 7 mörk í Pepsi Max-deildinni á fyrsta tímabili, en fékk lítið að spreyta sig á síðasta ári og var samningnum rift.

Fyrir síðasta tímabil gekk hann í raðir FH þar sem hann gerði 9 mörk í 19 leikjum í Bestu deildinni. Kjartan tók á dögunum við nýju hlutverki sem aðstoðarþjálfari FH og tilkynnti síðan í dag að skórnir væru komnir upp í hillu.

Í heildina skoraði Kjartan 60 mörk í 157 leikjum í efstu deild ásamt því að leika 13 A-landsleiki og skora 3 mörk.

„Það var eiginlega fyrst í gær á æfingu þar sem ég fékk svona tilfinningu. Ég var í hlaupaskóm að setja niður keilur, en ekkert verið að hugsa út í það. Margir að spyrja út í það núna en ég fann þessa tilfinningu í gær, strákarnir fóru í reit og síðan í spil, en ég hugsaði allan tímann að ég gæti gert þetta betur en þeir. Skórnir eru komnir upp í hillu og það er vel þegar maður getur farið í svona hlutverk,“ sagði Kjartan.

„Það eru alger forréttindi að fara úr því að vera leikmaður og halda áfram að vera í þessu umhverfi með þessum strákum. Þetta mun hafa sinn gang og ég er alveg 100 prósent tilbúinn í það,“ sagði Kjartan ennfremur.
Kjartan varð Íslandsmeistari í tvígang og þrisvar sinnum bikarmeistari með KR

Kjartan varð Íslandsmeistari í tvígang og þrisvar sinnum bikarmeistari með KR

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kjartan Henry leggur skóna á hilluna (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Jónína Guðjörg Guðbjartsdóttir

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.