Van Hecke gerir nýjan samning við Brighton (Staðfest)


Mynd: EPA


Mynd: EPA
Jan Paul van Hecke hefur skrifað undir nýjan samning við Brighton sem gildir til ársins 2027.
Van Hecke er 23 ára gamall Hollendingur sem gekk til liðs við félagið frá NAC Breda í heimalandinu árið 2020 og var á láni hjá Herenveen og Blackburn tvö fyrstu árin en spilaði 13 leiki fyrir Brighton á síðustu leiktíð og hefur komið við sögu í sjö leikjum á þessari leiktíð.
„Ég er mjög ánægður. Það eru góðir tímar framundan og ég er ánægður með það hvernig hlutirnir eru að ganga núna. Við erum að gera vel í deildinni og í Evrópudeildinni," sagði Van Hecke við undirskriftina.
Brighton tryggði sér sæti í 16 liða úrslitum Evrópudeildarinnar með sigri á Marseille í vikunni.
„Það var stórt afrek, maður fann það frá öllum á vellinum, leikmönnum, starfsfólki og stuðningsmönnunum. Það er frábært að vinna á síðustu mínútunni, það nutu þess allir," sagði Van Hecke.
Van Hecke á að baki 8 u21 árs landsleiki fyrir hönd Hollands en hann vonast til að vinna sér sæti í A landsliðinu fyrir EM í Þýskalandi næsta sumar.
We're delighted to announce that Jan Paul van Hecke has signed a new contract that runs until June 2027! ????
— Brighton & Hove Albion (@OfficialBHAFC) December 15, 2023




