Sandra Voitane aftur til ÍBV (Staðfest)

Fagnar hér marki með ÍBV.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fagnar hér marki með ÍBV.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sandra Voitane er aftur gengin í raðir ÍBV eftir að hafa spilað eitt sumar með Keflavík.
Hún skrifar undir samning við ÍBV sem gildir út næsta sumar.

Sandra lék með ÍBV árið 2022 og er öflugur leikmaður sem getur spilað margar stöður á vellinum.
Hún er 24 ára gömul landsliðskona frá Lettlandi en hún hefur skorað 14 mörk í 55 A-landsleikjum og hefur leikið 12 leiki í Meistaradeild Evrópu.
Samtals hefur hún leikið 37 deildarleiki hérlendis með ÍBV og Keflavík og skorað í þeim sex mörk.
„Knattspyrnuráð ÍBV býður Söndru velkomna aftur til félagsins," segir í tilkynningu frá ÍBV en Vestmannaeyingar eiga enn eftir að ráða þjálfara eftir að hafa fallið úr Bestu deildinni í sumar.