Fotbolti.net
12.12.23 - 14:19
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Emelía til dönsku meistaranna (Staðfest)

Emelía til dönsku meistaranna (Staðfest)
Canon

Mynd: HB Köge/Instagram

Hertz
Emelía Óskarsdóttir er gengin í raðir danska félagsins HB Köge. Félagið greindu frá þessu í dag. Emelía kemur frá Kristianstad í Svíþjóð þar sem hún var í tvö ár en fékk sig lausa þaðan í lok tímabilsins.

Hún er uppalin í Gróttu en hefur einnig verið á mála hjá Ballerup-Skovlunde í Danmörku á sínum ferli.
Hún er sóknarmaður sem danska félagið hefur fylgst með í talsverðan tíma og sagði þjálfari liðsins, Kim Daugaard, að félagið hefði áður reynt að fá Emelíu í sínar raðir. „Emelía er virkilega drífandi, bæði sem manneskja og með boltann fyrir framan sig, svo við hlökkum til að fá hana til félagsins," sagði Daugaard.

Hún er sautján ára gömul og lék hún fyrri hluta tímabilsins í ár á láni með Selfossi á Íslandi. Hún á að baki 32 leiki fyrir yngri landsliðin og hefur í þeim skorað ellefu mörk. Hún verður í treyju númer 22 hjá Köge og mun hefja æfingar hjá félaginu þann 18. janúar þegar vetrarfríinu lýkur.

Með þessu skrefi færist Emelía nær bróður sínum sem býr í Kaupmannahöfn og spilar með FCK. Orri Steinn er nítján ára og hefur verið í nokkuð stóru hlutverki hjá dönsku meisturunum á tímabilinu.

„Ég er viss um að þetta sé hárrétt skref fyrir mig og minn feril. Hér eru bestu mögulegu aðstæður fyrir mig til að þróast sem leikmaður og sem einstaklingur. Ég hef þegar hitt starfsfólkið og liðið og það hefur verið tekið virkilega vel á móti mér. Núna hlakka ég mikið til að byrja og hefja nýtt ævintýri í HB Köge," sagði Emelía við undirskrift.

HB Köge er í 3. sæti þegar ein umferð er eftir fram að tvískiptingu. Eftir áramót tekur svo við tvöföld umferð þar sem efstu sex liðin spila innbyrðis. Köge hefur unnið deildina síðustu þrjú tímabil.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.