Fotbolti.net
14.12.23 - 17:30
Ívan Guðjón Baldursson

Jörgen framlengir við Þrótt - Samúel Már kemur frá Fjölni (Staðfest)

Jörgen framlengir við Þrótt - Samúel Már kemur frá Fjölni (Staðfest)
Canon

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Lengjudeildin
Það er mikill gleðidagur fyrir Þróttara í dag vegna þess að Norðmaðurinn Jörgen Pettersen er búinn að framlengja samning sinn við félagið út næsta keppnistímabil. Þá eru Þróttarar einnig búnir að krækja sér í varnarmanninn öfluga Samúel Má Kristinsson.
Jörgen var gríðarlega öflugur á miðjunni hjá Þrótti á sínu fyrsta tímabili með félaginu og skoraði 10 mörk í 25 leikjum í deild og bikar.

Jörgen er fæddur 1997 og kom fyrst til Íslands fyrir sumarið 2021 þegar hann gekk til liðs við ÍR. Hann var lykilmaður í Breiðholti og er lykilmaður í Laugardal.

Samúel Már kemur úr röðum Fjölnis en hefur síðustu ár gert góða hluti í bandaríska háskólaboltanum. Samúel er fæddur árið 2000 og kom við sögu í einum leik með Fjölni í Lengjudeildinni í sumar, auk þess að spila tvo leiki með Kríu í 5. deildinni.

Sigurvin Ólafsson, þjálfari Þróttar, vildi fá Samúel Má til félagsins eftir að hafa þjálfað hann þegar þeir voru báðir hjá KV.

Samúel gerir þriggja ára samning við Þrótt sem gildir út keppnistímabilið 2026.
Jörgen framlengir við Þrótt - Samúel Már kemur frá Fjölni (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.