Sandra María áfram hjá Þór/KA (Staðfest) - Þrjár aðrar framlengdu

Sandra María eftir undirskriftina í kvöld.

Mynd: Þór/KA

Jóhann Kristinn með Söndru Maríu.

Mynd: Þór/KA

Leikmennirnir fjórir sem framlengdu í kvöld.

Mynd: Þór/KA

Frá undirskriftinni.

Þór/KA tilkynnti í kvöld að landsliðskonan Sandra María Jessen verði áfram hjá félaginu. Sandra María hefur nýtt síðustu viku í að íhuga framtíð sína. Hún hafði ákveðið að spila áfram á Íslandi en valið stóð að lokum á milli Þórs/KA eða spila á höfuðborgarsvæðinu. Hún valdi heimahagana á Akureyri.
Sandra María samdi við félagið til tveggja ára en á sama tíma var tilkynnt um framlengingu samninga við Agnesi Birtu Stefánsdóttur, Angelu Mary Helgadóttur og Iðunni Rán Gunnarsdóttur.

„Það er mikið fagnaðarefni fyrir okkur í Þór/KA að Sandra hafi ákveðið að vera hér áfram,“ segir Jóhann Kristinn Gunnarsson þjálfari Þórs/KA í tilkynningu félagsins.
„Eðlilega er hún eftirsótt enda leikmaður sem býr yfir miklum hæfileikum og gæðum. Ein af þeim allra sterkustu í Bestu deildinni. Það er líka mikið hrós á félagið okkar að leikmaður af hennar kaliberi sjái hag sinn í því að æfa hér og spila og treysta okkur og okkar umhverfi fyrir því að þróa sinn leik áfram og festa sig enn frekar í sessi sem lykilleikmaður í A-landsliði Íslands. Sandra María er ekki bara lykilleikmaður í Þór/KA hún er einnig fyrirmynd fyrir yngri leikmenn og frábær vitnisburður um hvaða árangri hægt er að ná með dugnaði, fórnfýsi og sjálfsaga. Það er ekki nokkur spurning að þessi undirskrift er mikið gæfuspor og gott skref fram á við í starfinu okkar hér í Þór/KA.“
Sandra María hefur verið lykilmaður í liði Þórs/KA undanfarin tvö tímabil eftir að hún sneri heim frá Þýskalandi, og fyrirliði liðsins seinna árið. Hún hefur verið markahæst leikmanna félagsins bæði árin, skoraði átta mörk í 18 leikjum í Bestu deildinni 2022 og átta mörk í 19 leikjum á nýafstöðnu tímabili. Þá skoraði hún 12 mörk í sjö leikjum í A-deild Lengjubikarsins í upphafi árs og hefur einnig verið iðin við markaskorun í æfingaleikjum og undirbúningsmótum.
Hún gekk aftur í raðir Þórs/KA fyrir tímabilið 2022 eftir að hafa verið hjá þýska úrvalsdeildarfélaginu Bayer 04 Leverkusen frá ársbyrjun 2019. Áður hafði hún tvisvar spilað í nokkra mánuði á lánssamningi erlendis, hjá Slavia Prag 2016 og Leverkusen 2018.
Agnes Birta á að baki 80 KSÍ-leiki í meistaraflokki, þar af 38 í efstu deild, ásamt leikjum í næstefstu deild með Hömrunum 2018 og Tindastóli 2020 á lánssamningum frá Þór/KA.
Hún kom fyrst við sögu í meistaraflokki með Þór/KA sumarið 2015, en leikjaferill hennar hér heima markaðist nokkuð af því að hún stundaði nám og spilaði knattspyrnu með háskólaliði í Bandaríkjunum 2018-2022.
Iðunn Rán á að baki 46 meistaraflokksleiki í mótum á vegum KSÍ, þar af 27 leiki í efstu deild. Hún spilaði fyrstu meistaraflokksleiki sína með Hömrunum í 2. deild sumarið 2020 og hefur verið í leikmannahópi Þórs/KA síðan þá, spilað reglulega með meistaraflokki og 2. flokki.
Iðunn Rán hefur mest spilað sem miðvörður, en einnig brugðið sér í aðrar stöður. Hún var fyrirliði Þórs/KA/Völsungs í 2. flokki í sumar sem vann Íslandsmeistaratitilinn með yfirburðum. Hún á jafnframt að baki 11 landsleiki með yngri landsliðum Íslands, nú síðast með U19 landsliðinu
Miðvörðurinn Angela Mary kom fyrst við sögu í meistaraflokki vorið 2021 með Hömrunum í bikarkeppni og 2. deild og skrifaði undir sinn fyrsta samning við Þór/KA í apríl 2022. Hún á að baki 30 leiki og eitt mark í KSÍ-leikjum í meistaraflokki, þar af 12 leiki í efstu deild. Þá hefur hún spilað samtals 11 leiki með yngri landsliðum Íslands, U18, U17 og U16.