Guido og Roli verða áfram í Hveragerði (Staðfest)

Mynd: Hamar

Mynd: Hamar
Hamar í Hveragerði er búið að tryggja sér áframhaldandi þjónustu Argentínumannanna Guido Rancez og Roli Depedris á næstu leiktíð.
Guido og Roli, báðir fæddir 1990, komu inn sem stormsveipur í 4. deildina í sumar og hjálpuðu Hamri úr fallbaráttunni.
Miðjumaðurinn sóknarsinnaði Guido gerði sér lítið fyrir og skoraði 12 mörk í 15 leikjum, á meðan kantmaðurinn Roli setti 5 mörk í 14 leikjum.
Hamar endaði með 24 stig úr 18 umferðum í sumar og getur stefnt enn hærra með þessa tvo lykilmenn áfram innan raða félagsins.
„Þeir komu til okkar á erfiðum tímapunkti hjá félaginu síðasta sumar og áttu stórann þátt í að félaginu tókst að ná markmiðum sínum. Þeir hafa gefið mikið af sér til yngri iðkenda hjá Hamri og munu koma að þjálfun yngri flokka í ár," segir meðal annars í tilkynningu frá Hamri.
„Við fögnum áframhaldandi samstarfi við tvo frábæra leikmenn og enn betri einstaklinga."