Breiðablik fær unglingalandsliðskonu frá Sindra (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Jónína Guðjörg Guðbjartsdóttir

Breiðablik er búið að gera samning við bráðefnilega unglingalandsliðskonu sem kemur til félagsins úr herbúðum Sindra frá Höfn í Hornafirði.
Stúlkan heitir Kristín Magdalena Barboza og er aðeins 15 ára gömul, fædd 2008.
Hún á fimm leiki að baki fyrir U15 landslið Íslands og var hún með byrjunarliðssæti í liði Sindra í 2. deild kvenna í sumar.
Kristín á í heildina 26 meistaraflokksleiki að baki í 2. deild þrátt fyrir ungan aldur.
Hún mun að öllum líkindum spila með Augnablik á komandi leiktíð en það verður spennandi að fylgjast með þróun hennar í Kópavogi.