Fotbolti.net
14.12.23 - 07:00
Ívan Guðjón Baldursson

Katie Cousins í Val (Staðfest)

Katie Cousins í Val (Staðfest)
Canon

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Hertz
Valur var að tilkynna stórfréttir í kvennaboltanum þar sem Íslandsmeistarar síðustu þriggja ára voru að tryggja sér þjónustu Katie Cousins.
Katie hefur verið einn besti leikmaður í sterku liði Þróttar R. undanfarin ár og var hún valin í lið ársins í Bestu deildinni 2021 og 2023. Hún lék ekki á Íslandi í fyrra þar sem hún var á mála hjá Angel City FC, sem leikur í efstu deild kvenna í Bandaríkjunum, en átti erfitt uppdráttar þar og hélt því aftur til Íslands.

Katie er gríðarlega öflugur miðjumaður sem mun fylla í skarðið fyrir Þórdísi Elvu Ágústsdóttur sem Valur missti til Växjö í Svíþjóð í haust.

Katie hefur skorað 11 mörk í 37 leikjum í efstu deild og gæti reynst afar mikilvæg viðbót við ógnarsterkt lið Vals.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.