Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögnum skilaði 24442 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR15.09.2023, 12:30

Taylor fer frá Blikum til Twente (Staðfest)

Taylor Marie Ziemer var í morgun tilkynnt sem nýr leikmaður hollenska félagsins FC Twente. Hún gengur í raðir félagsins eftir þrjú tímabil með Breiðabliki. Hún gekk í raðir Breiðabliks í maí 2021 og skoraði hún 17 mörk í 71 KSÍ leik fyrir Breiðablik. Haustið 2021 varð hún bikarmeistari með Breiðabliki. Hún er fædd árið 1998 og lék með ADO Den Haag í Hollandi árið 2018. Í kjölfarið fór hún í háskólaboltann í Bandaríkjunum og kom svo til Íslands. <i>„Hún er kröftug, stór og sterkur miðjumaður sem getur leyst margar stöður. Hún er alhliða leikmaður og hefur einnig spilað frammi. Við vonumst til þess að hún geti stigið inn í margar stöður og hjálpað okkur,"</I> sagði Vilhjálmur Kári Haraldsson um Taylor þegar hún gekk í raðir Breiðabliks.

FRÉTTIR14.09.2023, 16:30

Shelvey til Tyrklands (Staðfest)

Jonjo Shelvey er genginn í raðir tyrkneska félagsins Caykur Rizespor á láni út tímabilið. Shelvey er 31 árs enskur miðjumaður sem kemur á láni frá Nottingham Forest. Shelvey kom til Forest frá Newcastle United í byrjun ársins en hann hefur ekki fengið að spila leik síðan í apríl eftir að hann lenti upp á kant við Steve Cooper, stjóra félagsins. Enski miðjumaðurinn er ekki í 25-manna leikmannahópi Forest í ensku úrvalsdeildinni og fékk því leyfi til að fara frá félaginu. Shelvey hefur áður spilað fyrir lið á borð við Swansea, Blackpool, Liverpool og Charlton. Hann á að baki sex A-landsleiki.

FRÉTTIR14.09.2023, 14:30

Framkvæmdastjóri Arsenal hættir næsta sumar (Staðfest)

Vinai Venkatesham, framkvæmdastjóri Arsenal, mun stíga til hliðar næsta sumar eftir fjórtán ár hjá félaginu. Þetta kemur fram í tilkynningu á heimasíðu Arsenal í dag. Vinai hefur ekki mikið ratað í fréttirnar hér á Fótbolta.net en kom aðeins við sögu í tengslum við áform um Ofurdeildina og áður ráðninguna á Mikel Arteta. Vinai hefur verið í stöðu framkvæmdastjóra síðan 2018 þegar Ivan Gazidis hætti hjá félaginu og hélt til AC Milan. Áður var Vinai yfirmaður auglýsingadeildar hjá Arsenal.

FRÉTTIR14.09.2023, 13:04

Molde kaupir Kristófer Snæ (Staðfest)

Njarðvík tilkynnti rétt í þessu að félagið væri búið að ná samkomulagi við norska félagið Molde. Kristófer Snær Jóhannsson hefur verið keyptur til Noregs frá Njarðvík. <i>„Kristófer sem er ungur og efnilegur sóknarmaður, fæddur árið 2006 gekk til liðs við Njarðvík fyrir tímabilið og lék alls níu meistaraflokks leiki með félaginu ásamt því að leika fyrir 2. flokk,"</I> segir m.a. í tilkynningu Njarðvíkur.

FRÉTTIR14.09.2023, 09:40

Glugginn í ensku ofurdeildinni lokar í dag - Man Utd fær heimsmeistara (Staðfest)

Glugginn í ensku kvennadeildinni, ofurdeildinni, lokar í dag og er eitthvað um hræringar á markaðnum. Manchester United er að kaupa varnarmanninn Gabby George frá Everton, Geyse frá Evrópumeisturum Barcelona fyrir metupphæð og þá hefur United einnig fengið markadrottningu HM, Hinata Miyazawa í sínar raðir. Alessia Russo og Ona Batlle hafa hins vegar yfirgefið félagið í glugganum sem og María Þórisdóttir. Mary Earps vill fara en United harðneitar að selja markmanninn öfluga.

FRÉTTIR12.09.2023, 15:11

Pétur hættur með Gróttu (Staðfest)

Pétur Rögnvaldsson er hættur sem þjálfari meistaraflokks kvenna hjá Gróttu. Frá þessu greinir félagið á samfélagsmiðlum í dag.

FRÉTTIR12.09.2023, 09:30

Þjálfarateymi Aftureldingar hættir (Staðfest)

Afturelding hefur staðfest að þjálfarateymi meistaraflokks kvenna hefur látið af störfum. <i>„Alexander Aron Davorsson, Bjarki Már Sverrisson og Ruth Þórðar Þórðardóttir hafa ákveðið að róa á önnur mið að loknu nýafstöðnu tímabili,"</i> segir í tilkynningu félagsins. Afturelding féll úr Bestu deildinni í fyrra og stóð ekki undir væntingum í Lengjudeildinni í sumar þar sem liðið hafnaði í 5. sæti og náði ekki að blanda sér í baráttuna um að komast upp. <i>„Alexander kom inn í meistaraflokk kvenna fyrir fimm árum, fyrst sem aðstoðarþjálfari og síðar sem aðalþjálfari. Alexander hefur unnið mikið starf fyrir meistaraflokk og verðum við honum ævinlega þakklát fyrir alla þá óeigingjörnu og heilmiklu vinnu en segja mætti að hann hafi verið vakinn og sofinn yfir þessu verkefni,"</i> segir Afturelding. <i>„Bjarki Már og Ruth komu inn fyrir þremur árum og lyftu allri umgjörð í kringum liðið upp, þau mynduðu stórt þjálfara teymi sem þjónustaði okkar leikmenn í hæsta klassa. Við kveðjum frábært teymi og óskum þeim alls hins besta í því sem þau taka sér fyrir hendur."</i> Alexander Aron, sem er fyrrum leikmaður Aftureldingar, spilaði með Álafoss í 5. deildinni í sumar og raðaði inn mörkum. Hann útilokar ekki að leggja meiri áherslu á að spila sjálfur á næsta tímabili.

FRÉTTIR11.09.2023, 16:30

Lyon búið að reka Blanc (Staðfest)

Laurent Blanc hefur verið rekinn sem stjóri Lyon en liðið er á botni frönsku deildarinnar. 4-1 tap á heimavelli gegn hans fyrrum félagi, Paris St-Germain, reyndist síðasta hálmstráið. Lyon hefur aðeins fengið eitt stig úr fjórum leikjum á þessu tímabili og er með verstu markatöluna í deildinni.

FRÉTTIR10.09.2023, 20:21

Rubiales segir af sér (Staðfest)

<p>Luis Rubiales er búinn að segja upp starfi sínu sem forseti spænska knattspyrnusambandsins eftir að kvennalandsliðið vann HM. Frá þessu greindi hann sjálfur í viðtali við breska fréttamanninn Piers Morgan, í sjónvapsþættinum <i>Piers Morgan Uncensored</i>. </p>

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.