Pétur Rögnvaldsson er hættur sem þjálfari meistaraflokks kvenna hjá Gróttu. Frá þessu greinir félagið á samfélagsmiðlum í dag.
„Fyrir stuttu tilkynnti Pétur Rögnvaldsson, þjálfari meistaraflokks kvenna, stjórn og leikmönnum að hann hygðist taka sér hvíld frá þjálfun eftir níu ára farsælt starf fyrir knattspyrnudeild Gróttu. Það verður sjónarsviptir af Pétri þar sem hann hefur verið einn burðarásanna í þjálfarahópi félagsins í uppbyggingarstarfi þess á síðustu árum. Drýgstan skerf hefur Pétur þó lagt af mörkum til uppbyggingar kvennaknattspyrnu á Seltjarnarnesi og í Vesturbænum," segir m.a. í tilkynningunni.
Pétur, sem fæddur er árið 1993, tók einn við sem aðalþjálfari Gróttu í kjölfar fall liðsins niður í 2. deild haustið 2021. Það sumarið hafði hann stýrt liðinu með Magnúsi Erni Helgasyni og var hann þar á undan aðstoðarmaður Magnúsar.
Liðið fór rakleiðis upp í Lengjudeildina aftur og lék á dögunum úrslitaleik um sæti í Bestu deildinni. Fylkir hafði betur í leiknum og sat Grótta eftir með sárt ennið og verður liðið því áfram í Lengjudeildinni á næsta tímabili.
„Sú niðurstaða varpar ekki skugga á stórkostlegan árangur Gróttuhópsins."
„Gróttufólk þakkar Pétri ómetanlegt starf í þágu knattspyrnudeildar og félagsins. Það er ekki ofsagt að hann hafi gegnt lykilhlutverki í starfinu; borið hag félagsins fyrir brjósti, alltaf með hjartað á réttum stað og hugann við að byggja upp heilsteypta einstaklinga og öfluga liðsheild. Jafnframt óskum við Pétri velfarnaðar í öllu því sem hann tekur sér fyrir hendur í framtíðinni og bjóðum hann velkominn í bakvarðasveitina."
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir