Lyon búið að reka Blanc (Staðfest)

Laurent Blanc.

Mynd: Getty Images

Laurent Blanc.

Mynd: Getty Images
Laurent Blanc hefur verið rekinn sem stjóri Lyon en liðið er á botni frönsku deildarinnar. 4-1 tap á heimavelli gegn hans fyrrum félagi, Paris St-Germain, reyndist síðasta hálmstráið.
Lyon hefur aðeins fengið eitt stig úr fjórum leikjum á þessu tímabili og er með verstu markatöluna í deildinni.

Blanc er 57 ára og var ráðinn stjóri Lyon í október. Liðið endaði síðasta tímabil í sjöunda sæti og komst ekki í Evrópukeppni.
Þetta var fyrsta þjálfarastarf Blanc í Frakklandi síðan hann yfirgaf PSG 2016. Hann hafði í millitíðinni tekið tímabundið við Al Rayyan í Katar. Hann á þrjá Frakklandsmeistaratitla á ferilskrá sinni sem stjóri, tvo með PSG og einn með Bordeaux.
Undir stjórn Blanc fékk Lyon aðeins 1,53 stig að meðaltali í leik sem er versti árangur hjá félaginu síðustu 25 ár, ef níu leikja stjóratíð Sylvinho er ekki tekin með.
Jean-Francois Vulliez, yfirmaður akademíunnar hjá Lyon, tekur við stjórnartaumunum til bráðabirgða. Graham Potter er sagður hafa hafnað félaginu og þá er Gennaro Gattuso sterklega orðaður við starfið.