Framkvæmdastjóri Arsenal hættir næsta sumar (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Vinai Venkatesham, framkvæmdastjóri Arsenal, mun stíga til hliðar næsta sumar eftir fjórtán ár hjá félaginu. Þetta kemur fram í tilkynningu á heimasíðu Arsenal í dag.
Vinai hefur ekki mikið ratað í fréttirnar hér á Fótbolta.net en kom aðeins við sögu í tengslum við áform um Ofurdeildina og áður ráðninguna á Mikel Arteta.
Vinai hefur verið í stöðu framkvæmdastjóra síðan 2018 þegar Ivan Gazidis hætti hjá félaginu og hélt til AC Milan. Áður var Vinai yfirmaður auglýsingadeildar hjá Arsenal.

„Þetta var erfið ákvörðun en það er tími til að eltast við aðra áskorun. Núna er ekki tími til að kveðja því ég mun halda einbeitingunni fram á lokadag til að hjálpa næsta manni að taka við," sagði Vinai í tilkynningunni.