Fotbolti.net
14.09.23 - 16:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Shelvey til Tyrklands (Staðfest)

Shelvey til Tyrklands (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Jonjo Shelvey er genginn í raðir tyrkneska félagsins Caykur Rizespor á láni út tímabilið. Shelvey er 31 árs enskur miðjumaður sem kemur á láni frá Nottingham Forest.

Shelvey kom til Forest frá Newcastle United í byrjun ársins en hann hefur ekki fengið að spila leik síðan í apríl eftir að hann lenti upp á kant við Steve Cooper, stjóra félagsins.

Enski miðjumaðurinn er ekki í 25-manna leikmannahópi Forest í ensku úrvalsdeildinni og fékk því leyfi til að fara frá félaginu.

Shelvey hefur áður spilað fyrir lið á borð við Swansea, Blackpool, Liverpool og Charlton. Hann á að baki sex A-landsleiki.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.