
Rubiales segir af sér (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Luis Rubiales er búinn að segja upp starfi sínu sem forseti spænska knattspyrnusambandsins eftir að kvennalandsliðið vann HM. Frá þessu greindi hann sjálfur í viðtali við breska fréttamanninn Piers Morgan, í sjónvapsþættinum Piers Morgan Uncensored.
Rubiales hættir eftir að hafa verið undir gríðarlegri pressu undanfarna daga. Fótboltafólk á Spáni hefur þrýst á hann að segja af sér, sem og spænska ríkisstjórnin og Alþjóðaknattspyrnusambandið FIFA.
Ástæðan fyrir öllu þessu mótlæti er einföld. Rubiales sýndi afar óviðeigandi hegðun eftir sigur Spánar á HM, þar sem hann greip fyrst um punginn á sér í návist Spánardrottningar og 16 ára dóttur hennar, prinsessunar Infanta Sofia. Ekki löngu síðar greip hann um Jennifer Hermoso, leikmann Spánar, í fagnaðarlátunum og smellti rembingskossi á munn hennar.
Hermoso sagði síðar, eftir að hafa verið látin senda út stuðningsyfirlýsingu til Rubiales, að kossinn hafi ekki verið veittur með samþykki og er litið á þetta mál sem kynferðisbrotamál.
Viðbrögð Rubiales við mótlætinu hjálpuðu honum heldur ekki, þar sem hann bakkaði í vörn og hótaði meðal annars að kæra Hermoso fyrir rógburð.
Rubiales hefur einnig sagt af sér sem varaforseti framkvæmdanefndar UEFA.
Sjáðu fleiri fréttir um Rubiales
Luis Rubiales has sensationally resigned as President of the Royal Spanish Football Federation following the scandal over him kissing Spain’s Jenni Hermoso at the Women’s World Cup Final. He revealed the news in a world exclusive interview for PiersUncensored
byu/SpiritedSuccess5675 insoccer





