Fotbolti.net
14.09.23 - 13:04
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Molde kaupir Kristófer Snæ (Staðfest)

Molde kaupir Kristófer Snæ (Staðfest)
Canon

Mynd: Molde

Njarðvík tilkynnti rétt í þessu að félagið væri búið að ná samkomulagi við norska félagið Molde. Kristófer Snær Jóhannsson hefur verið keyptur til Noregs frá Njarðvík.

„Kristófer sem er ungur og efnilegur sóknarmaður, fæddur árið 2006 gekk til liðs við Njarðvík fyrir tímabilið og lék alls níu meistaraflokks leiki með félaginu ásamt því að leika fyrir 2. flokk," segir m.a. í tilkynningu Njarðvíkur.
Kristófer er uppalinn í Keflavík en söðlaði um í vetur og fór yfir í Njarðvík.

„Fimm leikjanna komu í sumar. Þrír í Lengjudeildinni og tveir þeirra í Mjólkurbikarnum. Áður hafði Kristófer spilað fjóra leiki í Lengjubikarnum í vetur.

Nú mun Kristófer freista gæfunnar í Noregi hjá ríkjandi Noregsmeisturum Molde, og vill Knattspyrnudeildin nýta tækifærið og óska honum góðs gengis á nýjum slóðum!"


Kristófer fór á reynslu til Molde í sumar og náði greinilega að heilla menn hjá félaginu sem er eitt það allra stærsta í Noregi. Í upphafi árs hafði hann farið á reynslu til Mjöndalen.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.