Fyrrum leikmaður Vals rekinn frá Charlton (Staðfest)
Enska þjálfaranum Dean Holden var í gær sagt upp störfum hjá enska C-deildarfélaginu Charlton Athletic.
Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.
Niðurstöður
Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögnum skilaði 24445 niðurstöðum.
Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.
Enska þjálfaranum Dean Holden var í gær sagt upp störfum hjá enska C-deildarfélaginu Charlton Athletic.
Ítalski þjálfarinn Roberto Mancini var í dag kynntur sem nýr þjálfari sádi-arabíska karlalandsliðsins.
Ganamaðurinn Mohammed Kudus skrifaði í dag undir samning við enska úrvalsdeildarfélagið West Ham en hann kemur frá Ajax fyrir tæpar 39 milljónir punda.
Skoski vinstri bakvörðurinn Kieran Tierney er genginn til liðs við Real Sociedad á láni frá Arsenal.

Bayer Leverkusen er búið að tilkynna kaup á Nathan Tella, 24 ára kantmanni sem kemur úr röðum Southampton. Hann á að fylla í skarðið sem Moussa Diaby skilur eftir með félagsskiptum sínum til Aston Villa.

Lazio er búið að staðfesta kaup á kantmanninum efnilega Gustav Isaksen sem kemur úr röðum Midtjylland fyrir um 12 milljónir evra.

Sheffield United er búið að kaupa Cameron Archer frá Aston Villa fyrir um 18 milljónir punda og gera fjögurra ára samning við leikmanninn.

Markvörðurinn Djordje Petrovic er genginn til liðs við Chelsea og gerir sjö ára samning við félagið. Hann gengur til liðsins frá New England Revolution í MLS deildinni í Bandaríkjunum.

Chelsea borgar um 14 milljónir punda fyrir leikmanninn.

Útrásin til Sádí-Arabíu er enn í fullum gangi og hefur spænska ungstirnið Gabri Veiga skrifað undir samning við Al-Ahli.

AS Roma er búið að staðfesta félagsskipti Sardar Azmoun til sín en hann kemur á lánssamningi frá Bayer Leverkusen sem gildir út tímabilið.

Inter er búið að staðfesta endurkomu Alexis Sanchez til félagsins fjórum árum eftir að hann skrifaði fyrst undir.

Tyrkneska stórveldið Fenerbahce hefur verið að styrkja leikmannahópinn sinn í sumar og var að staðfesta komu króatíska landsliðsmarkvarðarins Dominik Livakovic.

Southampton nýtti gærkvöldið til að kynna tvo nýja menn til leiks, þá Mason Holgate og Ryan Fraser sem koma úr röðum Everton og Newcastle.

Sevilla var að bæta tveimur leikmönnum við hópinn sinn fyrir átök haustsins.

Olympique de Marseille er búið að staðfesta félagsskipti sóknarmannsins Joaquín Correa frá Inter.

Þýskalandsmeistarar FC Bayern hafa staðfest kaup á ísraelska markverðinum Daniel Peretz sem kemur úr röðum Maccabi Tel Aviv fyrir rúmar 5 milljónir evra og hlutfalli af endursölurétti.

Nottingham Forest hefur fengið brasilíska miðjumanninn Andrey Santos lánaðan frá Chelsea út tímabilið. Þessi nítján ára leikmaður á einn landsleik fyrir Brasilíu en hann kom til Chelsea í janúar frá Vasco da Gama en var lánaður strax til baka. Hann skoraði átta mörk í 33 leikjum þegar Vasco vann sér inn sæti í efstu deild Brasilíu að nýju á síðasta ári.
Manchester City hefur tilkynnt að Jeremy Doku sé orðinn leikmaður félagsins. City kaupir hann á ríflega 55 milljónir punda frá Rennes. Belgíski vængmaðurinn kláraði læknisskoðun hjá félaginu í dag og eftir hana tilkynnti félagið um komu nýja leikmannsins. Doku skrifar undi fimm ára samning við ensku meistaranna og er hann þriðji leikmaðurinn sem félagið kaupir í sumar.
Groningen í Hollandi hefur að undanförnu verið orðað við Noam Emeran sem er vængmaður Manchester United. Upphaflega var greint frá því að hann færi frá United á láni en enska félagið greinir frá því að Emeran kaupi leikmanninn. Hann er tvítugur og skoraði fyrsta mark United á undirbúningstímabilinu í sumar þegar hann skoraði fyrra markið í 2-0 sigri á Leeds.
Árni Vilhjálmsson hefur yfirgefið herbúðir litháíska félagsins Zalgiris, hann komst að samkomulagi við félagið um riftun á samningi sínum. Árni er 29 ára gamall framherji sem samdi við Zalgiris snemma á þessu ári og gerði samning út tímabilið. Á heimasíðu Zalgiris er hann reyndar sagður 31 árs, tveimur árum eldri en hann er í raun.