Fotbolti.net
27.08.23 - 20:24
Brynjar Ingi Erluson

Roberto Mancini tekur við landsliði Sádi-Arabíu (Staðfest)

Roberto Mancini tekur við landsliði Sádi-Arabíu (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Ítalski þjálfarinn Roberto Mancini var í dag kynntur sem nýr þjálfari sádi-arabíska karlalandsliðsins.
Mancini hætti óvænt með ítalska landsliðið á dögunum en hann vann Evrópumótið fyrir tveimur árum.

Það kom á óvart að hann ákvað að hætta með liðið aðeins tíu mánuðum fyrir næsta Evrópumót en hann var ekki lengi að finna sér nýtt starf.

Hann var í dag ráðinn sem þjálfari karlalandsliðs Sádi-Arabíu og skrifaði undir fjögurra ára samning.

Ítölsku miðlarnir segja að Mancini muni þéna um 100 milljónir evra á þessum fjórum árum.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.