Fotbolti.net
27.08.23 - 18:45
Brynjar Ingi Erluson

Kieran Tierney til Real Sociedad (Staðfest)

Kieran Tierney til Real Sociedad (Staðfest)
Canon

Mynd: Real Sociedad

Skoski vinstri bakvörðurinn Kieran Tierney er genginn til liðs við Real Sociedad á láni frá Arsenal.
Tierney, sem er 26 ára gamall, var keyptur til Arsenal frá Celtic fyrir fjórum árum.

Hann hefur ekki verið í myndinni hjá Mikel Arteta í byrjun leiktíðar og vildi því bakvörðurinn fara annað í leit að spiltíma.

Skotinn gerði í dag eins árs lánssamning við Real Sociedad á Spáni en ekkert kaupákvæði er í samningnum.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.