Fotbolti.net
26.08.23 - 10:45
Ívan Guðjón Baldursson

Alexis Sanchez aftur til Inter (Staðfest)

Alexis Sanchez aftur til Inter (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Inter er búið að staðfesta endurkomu Alexis Sanchez til félagsins fjórum árum eftir að hann skrifaði fyrst undir.

Alexis, sem er 34 ára gamall, kemur á frjálsri sölu eftir frábært ár með Marseille í franska boltanum.

Hjá Marseille skoraði Alexis 18 mörk í 44 leikjum, en þar áður var hann leikmaður Inter og kom að 43 mörkum í 109 leikjum þar.

Þessi öflugi kantmaður hefur átt frábæran fótboltaferil þar sem hann kom meðal annars við hjá Barcelona, Arsenal og Manchester United auk þess að vinna Copa America í tvígang með Síle.

Alexis gerir eins árs samning við Inter og verður því aftur frjáls ferða sinna næsta sumar.

Alexis Sanchez aftur til Inter (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.