Leverkusen kaupir Tella frá Southampton (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: EPA


Mynd: Getty Images
Bayer Leverkusen er búið að tilkynna kaup á Nathan Tella, 24 ára kantmanni sem kemur úr röðum Southampton. Hann á að fylla í skarðið sem Moussa Diaby skilur eftir með félagsskiptum sínum til Aston Villa.
Leverkusen borgar 21 milljón evra fyrir en sú upphæð getur hækkað með árangurstengdum aukagreiðslum, auk þess að Southampton heldur hlutfalli af endursölurétti leikmannsins.
Tella gerði frábæra hluti á láni hjá Burnley á síðustu leiktíð þar sem hann kom að 24 mörkum í 45 leikjum er lærisveinar Vincent Kompany gerðu sér lítið fyrir og unnu Championship deildina.
Tella er níundi leikmaðurinn sem kemur til Leverkusen í sumar eftir mönnum á borð við Josip Stanisic, Granit Xhaka og Victor Boniface.
Leverkusen hefur átt frábært sumar á leikmannamarkaðinum og er búið að byrja nýtt deildartímabil af krafti.
Nathan Tella BABY! ????????????????????????????????
— Bayer 04 Leverkusen (@bayer04_en) August 27, 2023
We are delighted to announce the signing of the 24-year-old Englishman on a deal until 2028! ????????#Tella2028 | #Bayer04 #Werkself pic.twitter.com/wZl9Nxt0e3


Mynd: EPA





