Peretz kominn til Bayern (Staðfest)


Mynd: EPA


Mynd: EPA


Mynd: EPA
Þýskalandsmeistarar FC Bayern hafa staðfest kaup á ísraelska markverðinum Daniel Peretz sem kemur úr röðum Maccabi Tel Aviv fyrir rúmar 5 milljónir evra og hlutfalli af endursölurétti.
Peretz er 23 ára gamall og hefur verið lykilmaður í U21 landsliði Ísraels, auk þess að eiga einn leik fyrir A-landsliðið.
Talið er að Peretz muni berjast við Sven Ulreich um varamarkvarðarstöðu félagsins eftir Manuel Neuer sem er aðalmarkvörður.
Neuer er þó 37 ára gamall og hefur Bayern misst bæði Yann Sommer og Alexander Nübel frá sér í sumar.
Peretz er fimmti leikmaðurinn sem Thomas Tuchel fær í leikmannahópinn sinn í sumar eftir komu Harry Kane, Kim Min-jae, Raphael Guerreiro og Konrad Laimer.
A quick message from Daniel Peretz to the #FCBayern fans ????#ServusDaniel #MiaSanMia pic.twitter.com/Id408vup3W
— FC Bayern Munich (@FCBayernEN) August 25, 2023


Mynd: EPA





