Fotbolti.net
26.08.23 - 12:19
Ívan Guðjón Baldursson

Azmoun kominn til Roma (Staðfest) - Vinna í Lukaku

Azmoun kominn til Roma (Staðfest) - Vinna í Lukaku
Canon

Mynd: Getty Images

AS Roma er búið að staðfesta félagsskipti Sardar Azmoun til sín en hann kemur á lánssamningi frá Bayer Leverkusen sem gildir út tímabilið.

Roma fær kaupmöguleika með lánssamningnum. Azmoun er falur fyrir 12 milljónir evra eftir að hafa ekki staðist væntingarnar sem til hans voru gerðar hjá Leverkusen.

Azmoun er 28 ára gamall og goðsögn í Íran þar sem hann á 45 mörk í 71 landsleik.

Roma hefur ekki lokið framherjaleit sinni í sumar og viðurkenndi José Mourinho þjálfari að félagið væri að reyna að krækja í Romelu Lukaku á lánssamningi frá Chelsea.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.